Ársreikningur Rangárþings ytra 2019


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2019 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn fimmtudaginn 14. maí 2020 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2019 námu rekstrartekjur A og B hluta 2011,2 millj. kr. samanborið við 2027,1 millj. kr. árið 2018.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 1.747,5 millj.kr., en voru 1.668,6 millj. kr. á árinu 2018.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2019 námu 101,6 millj. kr. samanborið við 119,7 millj. kr. árið 2018. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 163,7 millj. kr. fyrir A og B hluta samanborið við 233,8 millj. kr. á árinu 2018.







 




Viðhengi


Attachments

Ársreikningur2019Rangárþingytrabyggðarráð300420