Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar 2019


Rekstrarafgangur ársins 2019 fyrir A og B hluta bæjarsjóðs nam 1.236 milljónum króna en áætlun ársins með viðaukum gerði ráð fyrir 642 milljóna króna afgangi. Rekstrarniðurstaða ársins fyrir A hluta var jákvæð um 426 milljónir króna en áætlun gerði ráð fyrir 45 milljóna króna halla.

Mismun á áætlun og niðurstöðu má einkum rekja til þess að gjaldfærsla lífeyrissjóðsskuldbindingar var um 392 milljónum krónum lægri en gert hafði verið ráð fyrir. Fjármagnsliðir voru einnig um 245 milljónum krónum lægri en áætlun gerði ráð fyrir vegna lægri verðbótaþáttar. Veltufé frá rekstri nam 3.396 milljónum króna eða 11,9% af heildartekjum.

Við höfum stigið varfærin og ábyrg skref í rekstri sveitarfélagsins. Niðurstöður ársreiknings 2019 eru í takti við áætlanir okkar og samræmist markmiðum um ábyrga fjármálastjórn og vel ígrundaðar ákvarðanir,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Aðgerðaáætlun vegna Covid19 var samþykkt einróma í bæjarstjórn í byrjun apríl. „Ég er sannfærð um að traustur rekstur síðustu ára og samstaða og einhugur stjórnenda og starfsfólks muni koma sveitarfélaginu í gegnum þær þrengingar sem Covid19 faraldurinn hefur í för með sér. Áhersla verður lögð á innspýtingu fjármagns á þeim stöðum sem koma hjólum atvinnulífs og efnahags á skrið að nýju. Þannig hyggjumst við flýta framkvæmdum og endurbótum, forgangsraða verkefnum út frá breyttum forsendum og fjölga atvinnuúrræðum. Augljóslega eru forsendur fjárhagsáætlunar 2020 brostnar að miklu leyti og ljóst að áætlanir munu taka miklum breytingum á komandi vikum og mánuðum. Útsvarstekjur munu skerðast , gjalddagar færast til og útgjöld aukast. Þetta verður stórt viðfangsefni sem mun hafa umtalsverð áhrif á rekstur bæjarfélagsins. En við höfum bæði burði og getu til að lágmarka neikvæð áhrif á þjónustu við íbúa og uppbyggingu innviða.”

Afborganir  langtímaskulda námu alls um 1,5 milljarði króna en tekin voru ný lán fyrir 1,1 milljarð króna.  Auk þess voru tekin lán á grundvelli leigusamnings við ríkissjóð að andvirði 600 milljónir króna og 495 milljónir króna vegna fjármögnunar fjárfestinga Húsnæðisskrifstofu á leiguíbúðum. Skuldaviðmið hélst óbreytt milli ára og var 112% í árslok 2019 sem er vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga.

Fjárfestingar á árinu 2019 námu 4.557 milljónum króna. Meðal helstu framkvæmda voru bygging nýs skóla í Skarðshlíð fyrir 1.258 milljón króna, bygging hjúkrunarheimilis fyrir 855 milljónir króna og framkvæmdir vegna íþróttamannvirkja að Ásvöllum, Kaplakrika og við Keili fyrir alls um 656 milljónir króna. Framkvæmdir við grunn- og leikskóla námu um 167 milljónum króna og endurbætur á St. Jósefsspítala um 85 milljónum króna. Þá nam kaupverð íbúða Húsnæðisskrifstofu um 243 milljónum króna. Framkvæmdir við gatnagerð og hafnarmannvirki  kostuðu 1.010 milljónir króna en tekjur vegna gatnagerðagjalda og byggingaréttar námu um 740 milljónum króna. Gatnagerðagjöld færð til lækkunar á framkvæmdakostnaði þar til verki lýkur námu 691 milljónum króna en tekjufærsla gatnagerðargjalda var 49 milljónir króna.

Heildareignir í lok árs námu samtals 59.536 milljón króna og jukust um 3.566 milljónir milli ára. Heildarskuldir og skuldbindingar námu samtals 45.300 milljónum króna og hækkuðu um 2.109 milljónir króna á milli ára.

Íbúar Hafnarfjarðar voru 29.971 þann 1. desember 2019 samanborið við 29.791 árið áður sem er íbúafjölgun um 180 eða 0,6%.

Ársreikningur Hafnarfjarðarbæjar fyrir árið 2019 var lagður fram í bæjarráði í dag 7. maí 2020 og er aðgengilegur á vef Hafnarfjarðar www.hafnarfjordur.is

 

Viðhengi


Attachments

Hafnarfjardarbaer_ársreikningur_2019_fyrri_umræða