Heimavellir hf.: Niðurstöður yfirtökutilboðs og innlausn hluta í Heimavöllum hf.


Þann 6. apríl 2020 gerði Fredensborg ICE ehf. hluthöfum í Heimavöllum hf. tilboð í hluti þeirra í félaginu. Gildistími yfirtökutilboðsins rann út þann 15. júní 2020 kl. 17:00. Yfirtökutilboðið var gert í samræmi við X. og XI. kafla laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti. Alls tóku 242 hluthafar tilboðinu sem áttu samtals 2.735.828.198 hluti í heimavöllum hf., eða sem nemur 24,32% hlutafjár í félaginu.

Eignarhlutur Fredensborg ICE ehf. nam 73,93% fyrir tilboðið en mun nema 98,25% af heildarhlutafé við uppgjör viðskipta eða 99,45% þegar leiðrétt hefur verið fyrir eigin hlutum. Hluthafar sem tóku tilboðinu fá greitt með reiðufé og fer greiðsla fram eigi síðar en þann 22. júní 2020 í samræmi við skilmála tilboðsins.

Fyrirtækjaráðgjöf Arctica Finance hf. var umsjónaraðili með yfirtökutilboðinu fyrir hönd Fredensborg ICE ehf.

Innlausn hluta í Heimavöllum hf.

Eftir uppgjör yfirtökutilboðs Fredensborg ICE ehf. hefur tilboðsgjafi eignast meira en 9/10 hlutafjár og atkvæðisréttar í Heimavöllum hf.

Samkvæmt 110. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti geta tilboðsgjafi og stjórn félagsins í sameiningu ákveðið að hluthafar í félaginu sæti innlausn á hlutum sínum. Fredensborg ICE ehf. og stjórn Heimavalla hf. hafa ákveðið að beita innlausnarrétti og mun hluthöfum Heimavalla hf., sem innlausnin tekur til, send tilkynning um innlausnina á næstu dögum.

Innlausnarverðið er 1,5 kr. fyrir hvern hlut í Heimavöllum hf. og greitt verður fyrir hlutina með reiðufé. Er um að ræða sama verð og Fredensborg ICE ehf. bauð hluthöfum Heimavalla hf. í yfirtökutilboði sem lauk 15. júní 2020, sem telst sanngjarnt innlausnarverð, sbr. 3. málsliður 1. mgr. 110. gr. laga nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.