Hagnaður Landsbréfa 768 milljónir á árinu 2020


Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna reksturs ársins 2020.  Helstu niðurstöður eru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa nam 768 milljónum króna eftir skatta á árinu 2020, samanborið við 489 milljónir á árinu 2019
  • Hreinar rekstrartekjur námu 2.182 milljón króna á árinu 2020, samanborið við 1.683 milljónir króna á árinu 2019
  • Eigið fé í árslok 2020 var 5.059 milljónir króna samanborið við 4.291 milljónum króna í árslok 2019
  • Í lok tímabilsins voru eignir í sjóðastýringu rúmir 210 milljarðar króna samanborið við 180 milljarða króna árið áður og auk þess voru í lok árs um 195 milljarðar króna í stýringu samkvæmt eignastýringarsamningum
  • Starfsmenn voru 20 talsins í árslok, en fjöldi ársverka á árinu var 19

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa: 

„Þó heimsfaraldur hafi að mörgu leyti sett svip sinn á árið 2020 gekk rekstur Landsbréfa vel á árinu. Sjóðir Landsbréfa skiluðu almennt góðri ávöxtun. Þessi velgengni endurspeglast öðrum þræði í því að stöðugt fjölgar einstaklingum og lögaðilum sem treysta Landsbréfum best fyrir fjármunum sínum. Við hjá Landsbréfum erum einstaklega þakklát fyrir þetta traust og munum halda áfram að leggja metnað okkar í að ávaxta þá fjármuni sem okkur er falið að stýra á ábyrgan hátt. Jafnframt munum við hér eftir sem hingað til hlusta eftir þörfum fjárfesta og endurspegla þær í fjölbreyttu sjóðaframboði félagsins, en þar má sem fyrr finna fjárfestingakosti sem mæta þörfum flestra fjárfesta.“

Nánari upplýsingar um ársreikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.


Viðhengi



Attachments

Ársreikningur Landsbref árið 2020