Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2021


Ársreikningur Norðurþings og stofnana fyrir árið 2021
Byggðarráð Norðurþings mun samþykkja ársreikning Norðurþings og stofnana sveitarfélagsins fyrir árið 2021 á fundi sínum þann 7. apríl 2022. Fyrri umræða um ársreikninginn fór fram í sveitarstjórn þann 29. apríl sl.
Samkvæmt lögum ber að fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og fer síðari umræða fram þann 26. april 2021, þar sem staðfesting sveitarstjórnar á ársreikningnum er fyrirhuguð.
Komi ekki fram mikilvægar viðbótarupplýsingar, sem geta haft áhrif á gerð ársreikningsins og/eða niðurstöður hans við afgreiðslu og samþykkt sveitarstjórnar munu endurskoðendur árita ársreikninginn með fyrirvaralausri áritun og sveitarstjórn staðfesta ársreikninginn í fyrirliggjandi mynd.
Rekstrarafkoma samstæðu Norðurþings
Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu 2021 námu 5.578 milljónum króna samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta. Rekstrarniðurstaða sveitarfélagsins samkvæmt samanteknum rekstrarreikningi A og B hluta var 246 milljónum króna betri en fjárhagsáætlanir gerðu ráð fyrir en samstæðan skilaði um 79 milljónum króna í restrarhagnað. Eigið fé samstæðu sveitarfélagsins í árslok nam 2.365 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi. Veltufé frá rekstri samstæðunnar nam um 818 milljónum króna. Handbært fé samstæðunnar í árslok nam um 927 milljónum króna.
Laun og launatengd gjöld á árinu námu alls 3.194 milljónum króna en starfsmannafjöldi hjá sveitarfélaginu og dótturfélögum þess nam 279 stöðugildum. Íbúafjöldi sveitarfélagsins 31. desember 2021 var 3.070 og fjölgaði um 40 frá fyrra ári.
Skuldahlutfall samkvæmt núgildandi reglum um fjárhagsleg viðmið sveitarfélaga fór úr 90% árið 2020 í 77% árið 2021.  
Nánari upplýsingar veitir Bergþór Bjarnason, fjármálastjóri og staðgengill sveitarstjóra Norðurþings í síma 464-6100
Húsavík, 29. mars 2022

Viðhengi



Attachments

Norðurþing - ársreikningur 2021 (29.3.2022)