Ársreikningur 2021


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2021 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 13. apríl 2021 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Vatnsveita Rangárþings ytra og Ásahrepps, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2021 námu rekstrartekjur A og B hluta 2.330,5 millj. kr. samanborið við 2.073,5 millj. kr. árið 2020.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstrarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 2.017,4 millj.kr., en voru 1.975,9 millj. kr. á árinu 2020.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2021 námu 146 millj. kr. samanborið við 116 millj. kr. árið 2020. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 171,5 millj. kr. fyrir A og B hluta, en var neikvæð um 14,9 millj. kr. árið 2020.

Veltufé frá rekstri í A og B hluta eru 391,8 millj. kr. Fjárfesting ársins í A og B hluta voru 161,1 millj. kr. Handbært fé í árslok voru 122,9 milljónir.

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur Rangárþings ytra_fyrri umræða_13.4.2022_til birtingar