Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins


Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2022.  Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa var tæpar 448 milljónir króna á fyrri hluta ársins samanborið við 602 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.059 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 1.361 milljón króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Eigið fé í lok tímabils var 3.417 milljónir króna samanborið við 5.969 milljónir króna í árslok 2021, en félagið greiddi Landsbankanum 3 milljarða arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 76,95% við lok tímabilsins.
  • Alls voru um 20 þúsund hlutdeildarskírteinishafar í sjóðum Landsbréfa og voru eignir í eigna- og sjóðastýringu samtals um 457 milljarðar króna í lok tímabils.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu. Hagnaður var 448 m. kr. sem er nokkuð lægri fjárhæð en árið áður sem skýrist af miklum viðsnúningi á hreinum fjármunatekjum á milli tímabila en erfiðar markaðsaðstæður á verðbréfamörkuðum á fyrri árshelmingi lituðu afkomuna að þessu sinni. Umsýslu- og árangurtengdar þóknanir hækka um tæplega 15% á milli ára og rekstrargjöld lækka töluvert. Grunnrekstur félagsins er því áfram að eflast . Í maímánuði greiddi félagið Landsbankanum eiganda félagsins 3 milljarða arðgreiðslu.

Töluvert umrót hefur verið á mörkuðum á árinu. Á sama tíma og áhrif Covid heimsfaraldursins eru að fjara út hafa styrjaldarátök í Úkraínu og miklar verðhækkanir á hrávörumörkuðum haft mikil áhrif á fjármálamarkaði. Verðbólga hefur vaxið hratt síðustu mánuði og gildir það jafnt um Ísland og önnur lönd bæði austan hafs og vestan. Það eru því krefjandi tímar á eignamörkuðum um þessar mundir og skiptir miklu máli að vandað sé til verka við ávöxtun fjármuna. Það er verkefni sem starfsfólk Landsbréfa tekur alvarlega, enda hafa Landsbréf um árabil skilað fjárfestum í sjóðum félagsins góðri ávöxtun og reynslumikið starfsfólk félagsins leggur sig fram við að standa undir því trausti sem vaxandi fjöldi sjóðfélaga sýnir Landsbréfum.

Landsbréf hafa um árabil verið í fararbroddi á Íslandi sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki. Félagið rekur fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta.“

Nánari upplýsingar um árshlutareikning Landsbréfa veitir Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa, í síma 410 2500.

Viðhengi



Attachments

Landsbréf hf. árshlutareikningur 30. júní 2022