Áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna dóms Landsréttar í máli nr. 36/2021, Vatnsendi


Hinn 25. apríl 2014 var Kópavogsbæ birt stefna af hálfu hluta erfingja Sigurðar K. Hjaltested, fyrrum ábúanda á Vatnsenda. Aðalkrafa stefnenda var sú að Kópavogsbær greiddi dánarbúi Sigurðar tæpa 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Málið var þingfest 5. nóvember 2014.

Með dómi Héraðsdóms Reykjaness 22. desember 2020 var Kópavogsbær sýknaður af öllum dómkröfum stefnenda er tóku til eignarnáms árin 1992, 1998 og 2000. Vegna eignarnáms Kópavogsbæjar 2007 var bærinn dæmdur til að greiða dánarbúi Sigurðar K. Hjaltested kr. 968.000.000 að viðbættum vöxtum.

Málinu var áfrýjað til Landsréttar sem kvað upp dóm í málinu 3. júní 2022. Var Kópavogsbær þar sýknaður af öllum dómkröfum gagnaðila sinna.

Gagnaðilar Kópavogsbæjar  óskuðu í kjölfarið eftir áfrýjunarleyfi Hæstaréttar vegna  dóms Landsréttar.

Hæstiréttur hefur nú tilkynnt málsaðilum að rétturinn hafi fallist á áfrýjunarleyfisbeiðnina. Búast má við dómi Hæstaréttar fyrri hluta næsta árs.