Rekstur Vestmannaeyjabæjar jákvæður um 564 milljónir



Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2023 verður tekinn til fyrri umræðu á fundi bæjarstjórnar Vestmannaeyja í dag. Ársreikningurinn sýnir glögglega sterka stöðu bæjarsjóðs, jákvæða rekstrarafkomu, góða eignastöðu og litlar skuldir. 


Heildarrekstrartekjur samstæðu Vestmannaeyjabæjar voru 9.152 m.kr. og rekstrargjöld 8.168 m.kr. 

Rekstrarafkoma samstæðunnar (A og B hluta) var jákvæð um 564 m.kr.  Afkoma A-hluta var jákvæð um 231 m.kr. Heildartekjur A-hluta voru 5.954 m.kr og rekstrargjöld voru 5.544 m.kr. 


Heildareignir samstæðu Vestmannaeyjabæjar námu rúmum 17.325 m.kr. í árslok 2023. Þar af stóð handbært fé og skammtímafjárfesting í rúmum 1.590 m.kr. Allar fjárfestingar bæjarins á árinu eru fjármagnaðar með handbæru fé (þ.e. eigið fé, ekki lántaka) og námu fjárfestingar samstæðu Vestmannaeyjabæjar um 988 m.kr. á árinu. 


Markvisst hefur verið unnið að því síðustu ár að greiða niður skuldir bæjarsjóðs og er skuldastaða Vestmannaeyjabæjar við lánastofnanir mjög góð. A-hluti bæjarsjóðs verður skuldlaus við fjármálastofnanir á yfirstandandi ári.  Jafnframt er skuldaviðmið, sem oft er vísað til í umræðu um fjármál sveitarfélaga, lágt og töluvert lægra en flestra annarra sveitarfélaga en það nemur 20,7% í árslok 2023. 


Ársreikningurinn endurspeglar vel fjárhagslegan styrk sveitarfélagsins sem er vel í stakk búið til að standa undir framtíðaruppbygginu í sveitarfélaginu. Fjármálastjórnun bæjarins er fagleg, vel ígrunduð og með hagsmuni íbúa að leiðarljósi. Framtíðarhorfur samfélagsins eru bjartar.  


Viðhengi



Attachments

Vestmannaeyjabær ársreikningur fyrir fyrri umræðu