Hampiðjan hf - Niðurstaða aðalfundar Hampiðjunnar hf.


Á aðalfundi Hampiðjunnar hf. sem haldinn var 22. mars 2024, var skýrsla stjórnar og ársreikningur fyrir árið 2023 samþykkt samhljóða.

Sjálfkjörið var í félagsstjórn.

Formaður félagsstjórnar

Vilhjálmur Vilhjálmsson

Meðstjórnendur

Auður Kristín Árnadóttir
Kristján Loftsson
Loftur Bjarni Gíslason
Sigrún Þorleifsdóttir

Eftirfarandi tillögur stjórnar Hampiðjunnar voru samþykktar:  

Tillaga um greiðslu arðs

Aðalfundur Hampiðjunnar hf. samþykkir að á árinu 2024 vegna rekstrarársins 2023 verði greiddar 1,10 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 700 milljónir ISK. Arðurinn verði greiddur í viku 23. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 22. mars 2024, þ.e. viðskipti sem fara fram á þeim degi koma fram í hlutaskrá félagsins á arðsréttindadeginum 26. mars. Arðleysisdagurinn er 25. mars.

Tillaga um þóknanir fyrir komandi starfsár

Aðalfundur samþykktir tillögu stjórnar um að þóknun til stjórnarmanna verði 330.000 ISK á mánuði, formaður fái þrefaldan hlut og að þóknun til nefndarmanna í endurskoðunarnefnd verði 100.000 ISK á mánuði, formaður fái 165.000 kr. á mánuði.

Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu félagsins

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að starfskjarastefna félagsins, sem samþykkt var á síðasta aðalfundi muni gilda áfram en starfskjarastefnan er í samræmi við 79. gr. a hlutafélagalaga nr. 2/1995.

Tillaga um endurskoðunarfélag

Endurskoðunarfélag verði PricewaterhouseCoopers ehf.

Tillaga um utanaðkomandi nefndarmann í endurskoðunarnefnd

Aðalfundur samþykkti tillögu stjórnar um að Jóhann Gunnar Jóhannsson, löggiltur endurskoðandi, verði utanaðkomandi nefndarmaður í endurskoðunarnefnd.