Ársreikningar Akureyrarbæjar 2023: Rekstur Akureyrarbæjar jákvæður um 436 milljónir



Ársreikningar Akureyrarbæjar fyrir árið 2023 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Rekstur samstæðunnar gekk vel og nokkru betur en gert hafði verið ráð fyrir. Fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir 659 milljóna króna halla en niðurstaðan var jákvæð um 436 milljón króna. Verðbólga og lífeyrisskuldbindingar settu mark sitt á uppgjörið. Sjóðstreymið var betra en árið áður.

Samstæða Akureyrarbæjar, þ.e. Aðalsjóður, Fasteignir Akureyrarbæjar, Eignasjóður gatna og Umhverfismiðstöð ásamt fyrirtækjum í eigu bæjarins, s.s. Félagslegum íbúðum, Strætisvögnum Akureyrar, Hlíðarfjalli, Hafnasamlagi Norðurlands og Norðurorku, var rekin með 436 millj. kr. afgangi. Rekstur samstæðu Akureyrarbæjar gekk því betur en á horfðist því í fjárhagsáætlun hafði verið gert ráð fyrir 653 millj. kr. neikvæðri niðurstöðu. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar fyrir fjármagnsliði og tekjuskatt var jákvæð um 2.964 millj. kr. en áætlun hafði gert ráð fyrir 2.580 millj. kr. rekstrarafgangi. Meginskýringar á bættri afkomu eru hærri skatttekjur af útsvari og Jöfnunarsjóði ásamt auknum þjónustutekjum. Aukin verðbólga á liðnu ári setti hins vegar svip á rekstrargjöldin og voru fjármagnsgjöld og verðbætur 2.502 millj. kr. Lífeyrisskuldbindingar urðu einnig hærri en gert var ráð fyrir og námu alls 1.205 millj. kr. eða 605 millj. kr. umfram áætlun.

Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 5.281 millj. kr. sem var 737 millj. kr. hærra en áætlað var. Sambærileg fjárhæð árið áður var 4.474 millj. kr. Handbært fé frá rekstri var 4.892 millj. kr. Fjárfestingahreyfingar námu samtals nettó 4.648 millj. kr. en fjármögnunarhreyfingar námu samtals nettó -1.163 millj. kr. Afborganir langtímalána voru 1.501 millj. kr. Ný langtímalán voru tekin fyrir 800 millj. kr. hjá Norðurorku. Lækkun á handbæru fé á árinu nam 919 millj. kr. og var handbært fé samstæðunnar í árslok 2.566 millj. kr. Veltufé frá rekstri árið 2023 í hlutfalli við tekjur var 15,35% í samstæðunni og 9,75% í A-hluta. Árið áður voru hlutföllin 14,68% í samstæðunni og 10,00% í A-hluta.

Heildarlaunagreiðslur með launatengdum gjöldum en án hækkunar lífeyrisskuldbindinga hjá samstæðunni voru 18.024 millj. kr. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.484 sem er fjölgun um 39 stöðugildi frá árinu áður. Laun og launatengd gjöld ásamt lífeyrisskuldbindingum samstæðunnar í hlutfalli við rekstrartekjur hennar voru 55,9%. Annar rekstrarkostnaður var 29,4% af rekstrartekjum. Skatttekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga voru 1.138 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur voru samtals 1.737 þús. kr. á hvern íbúa. Árið 2022 voru skatttekjurnar 1.028 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 1.558 þús. kr. á hvern íbúa.

Niðurstaða rekstrar A-hluta var neikvæð um 454 millj. kr. en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir neikvæðri niðurstöðu um 810 millj. kr.

Samkvæmt efnahagsreikningi voru eignir sveitarfélagsins í árslok 2023 bókfærðar á 66.971 millj. kr. en þar af voru veltufjármunir 6.914 millj. kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum námu samkvæmt efnahagsreikningi 39.947 millj. kr. en þar af voru skammtímaskuldir 5.924 millj. kr. 

Fjárhagur Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samstæðunnar í árslok 80% samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga en það var 84% árið áður. Skuldaviðmið í A-hluta var 56% í árslok en var 58% árið áður.

Veltufjárhlutfallið var 1,17 í árslok 2023 en var 1,27 árið áður. Bókfært eigið fé nam 27.023 millj. kr. í árslok en var 24.888 millj. kr. í árslok árið áður. Eiginfjárhlutfall var 40% af heildarfjármagni eins og árið áður.

Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 16. apríl og 7. maí nk.

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt lögum um reikningsskil sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða að meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. 

Akureyri, 4. apríl 2024

Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, sviðsstjóri fjársýslusviðs, í síma 460 1000.

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur samstæðu Akureyrarbæjar 2023_bæjarráð_4.4.24