Lánasjóður sveitarfélaga - Skuldabréfaútboð fellur niður og endurskoðuð útgáfuáætlun


Samkvæmt útboðsdagatali Lánasjóðs sveitarfélaga var áætlað að halda skuldabréfaútboð miðvikudaginn 10. apríl 2024. Í ljósi rúmrar lausafjárstöðu hefur verið ákveðið að fella útboðið niður.

Næsta útboð er fyrirhugað þann 15. maí 2024.

Lánasjóður sveitarfélaga hefur frá áramótum gefið út skuldabréf fyrir rúmlega 2 milljarða króna að markaðsvirði. Sjóðurinn áætlar að gefa út 15-20 milljarða króna til viðbótar á árinu. Áætluð heildarútgáfa fyrir árið 2024 er því á bilinu 17-22 milljarðar króna að markaðsvirði. 

 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949