Ársreikningur Rangárþings ytra 2023


Ársreikningur Rangárþings ytra fyrir árið 2023 er lagður fram til fyrri umræðu í sveitarstjórn miðvikudaginn 10. apríl 2023 og vísað til síðari umræðu og afgreiðslu í sveitarstjórn í samræmi við sveitarstjórnarlög.

Ársreikningurinn hefur að geyma ársreikning fyrir þær rekstrareiningar sem falla undir A hluta starfsemi sveitarfélagsins og samantekinn ársreikning fyrir alla starfsemi þess, það er A og B hluta sbr. 60 gr. Sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í A hluta er starfsemi sem að hluta, eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum, en auk Aðalsjóðs er um að ræða Eignasjóð og Þjónustumiðstöð, auk samstarfsverkefna í A hluta skv. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015. Til B hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki í eigu sveitarfélagsins, en rekstur þessara fyrirtækja er fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtæki sem falla undir B hluta eru Leiguíbúðir, Félagslegar íbúðir, Fráveita, Rangárljós og Suðurlandsvegur 1-3 hf, auk samstarfsverkefna í B hluta skv. reglugerðarbreytingu 230/2021 á 20.gr reglugerðar 1212/2015.

Samkvæmt rekstrarreikningi 2023 námu rekstrartekjur A og B hluta 3.342,4 millj. kr. samanborið við 3.179,4 millj. kr. árið 2022.

Rekstrargjöld A og B hluta eru laun, annar rekstrarkostnaður og afskriftir sem námu samtals 2.903,8 millj.kr., en voru 2671,8 millj. kr. á árinu 2022.

Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur A og B hluta árið 2023 námu 217,8 millj. kr. samanborið við 224,8 millj. kr. árið 2022. Rekstrarniðurstaða ársins er jákvæð um 230,3 millj. kr. fyrir A og B hluta, en var jákvæð um 292,9 millj. kr. árið 2022.

Veltufé frá rekstri í A og B hluta eru 577,6 millj. kr. Fjárfesting ársins í A og B hluta voru 563,8 millj. kr. Handbært fé í árslok voru 392,3 milljónir.

Viðhengi



Attachments

Ársreikningur 2023 Rangárþing ytra