Fly Play hf.: Ólafur Þór lætur af störfum að eigin ósk


Ólafur Þór Jóhannesson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs PLAY, lætur af störfum að eigin ósk. Ólafur mun áfram sinna stöðu framkvæmdastjóra fjármálasviðs þar til eftirmaður hans tekur við.

„Ólafur hefur reynst góður liðsmaður á þeim tíma sem hann hefur verið hjá félaginu. Hann var lykilmaður í gegnum mikilvæga fjármögnunarlotu félagsins á fyrsta ársfjórðungi og kveður nú félagið í góðri stöðu til framtíðar. Ég þakka Ólafi fyrir farsælt samstarf og óska honum velfarnaðar í hverju því sem hann tekur sér fyrir hendur,“ segir Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY.

„Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið tækifæri til þess að vera hluti af stórskemmtilegri PLAY vegferð.  Eftir farsæla fjármögnunarlotu tel ég réttan tímapunkt fyrir mig persónulega að stíga til hliðar og snúa mér að öðrum viðfangsefnum.  Ég vil nota tækifærið og óska PLAY og starfsfólkinu alls hins besta og hlakka til að fylgjast með því vaxa og dafna í framtíðinni.“ segir Ólafur Þór.