- Icelandair Group - Kynningarfundur 21. maí vegna uppgjörs fyrsta ársfjórðungs 2008


Icelandair Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2008 eftir
lokun markaða þriðjudaginn 20. maí nk. 

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 21. maí á Hilton Reykjavik
Nordica (Þingsal H). Kynningin hefst kl. 8:30.  Björgólfur Jóhannsson forstjóri
Icelandair Group mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum. 

Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á
heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is.