Íslandsbanki leysir til sín 42% hlutafjár í Icelandair Group hf. Íslandsbanki hf. hefur tilkynnt að hann hafi leyst til sín 42% hlutafjár í Icelandair Group hf. Fram kemur í tilkynningu bankans að aðgerðin hefur engin áhrif á daglega starfsemi félagsins, að hlutabréf þess verði áfram skráð í Nasdaq OMX kauphöllinni og að stefnt sé að því að hluturinn verði seldur aftur í opnu og gagnsæju söluferli eins fljótt og unnt er. Jafnframt segir í tilkynningu Íslandsbanka að rekstur Icelandair Group hafi gengið betur á fyrsta ársfjórðungi 2009 en áætlanir gerðu ráð fyrir. Nánari upplýsingar veita Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í síma +3548961455 Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri Icelandair Group í síma + 3546658801 Eftirfarandi er fréttatilkynning Íslandsbanka hf: “ Fréttatilkynning frá Íslandsbanka hf.: Íslandsbanki hf. leysir til sín 42% hlutafjár í Icelandair Group hf. - Hefur engin áhrif á daglega starfsemi félagsins - Hlutabréf félagsins áfram skráð í Nasdaq OMX kauphöllinni - FME veitir Íslandsbanka hf. undanþágu frá yfirtökuskyldu - Stefnt að því að hluturinn verði seldur aftur í opnu og gagnsæju söluferli Reykjavík 18. maí 2009 Íslandsbanki hf. hefur í dag leyst til sín hlutabréf í Icelandair Group hf., samtals um 42%. Fyrir átti bankinn tæp 5% í félaginu og á því í dag samtals um 47%. Íslandsbanki hf. leysir bréfin til sín á genginu 4,5 fyrir hvern hlut sem er síðasta skráða viðskiptagengi með bréf í félaginu. Aðgerðin hefur engin áhrif á daglega starfsemi Icelandair Group samstæðunnar. Hlutabréfin sem Íslandsbanki hf. hefur í dag leyst til sín voru til tryggingar á lánum vegna hlutabréfakaupa í Icelandair Group hf. Áfram unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu Rekstur Icelandair Group hf. gekk betur á fyrsta ársfjórðungi 2009 en áætlanir gerðu ráð fyrir. Félagið hefur á síðustu mánuðum unnið að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í samvinnu við Íslandsbanka hf. Þeirri vinnu miðar vel og það er vilji bankans að halda áfram samstarfi við núverandi stjórnendur félagsins. Hlutabréf félagsins áfram skráð í Nasdaq OMX kauphöll Icelandair Group hf. er skráð í Nasdaq OMX kauphöllinni og eru hluthafar félagsins samtals um 850. Félagið samanstendur af 12 dótturfélögum sem starfa á sviði flug- og ferðaþjónustu hérlendis og erlendis og hjá þeim félögum starfa samtals um 4000 manns. Það er ætlun Íslandsbanka að Icelandair Group hf. verði áfram skráð í Nasdaq OMX kauphöll. Eignarhlutur bankans verður seldur í opnu og gagnsæju söluferli eins fljótt og unnt er. Fjármálaeftirlitið hefur veitt Íslandsbanka hf. tímabundna undanþágu frá yfirtökuskyldu en takmarkað atkvæðisrétt bankans við 30% virkra atkvæða. Gert er ráð fyrir að boðað verði til hluthafafundar í félaginu á næstunni. Nánari upplýsingar veitir: Már Másson, forstöðumaður Samskiptasviðs, sími 844 4990, mar.masson@islandsbanki.is . Vala Pálsdóttir, sérfræðingur, sími 844 4989, vala.palsdottir@islandsbanki.is .“