Leiðrétting: "36 þúsund farþega" í fyrstu línu hefur verið breytt í "136 þúsund farþega":
Í apríl flutti félagið í millilandaflugi 136 þúsund farþega og voru þeir 19% fleiri en í apríl á síðasta ári. Framboð í millilandaflugi var aukið um 19% og sætanýting jókst um 2,0 prósentustig og var 81,5%. Þetta er í fyrsta sinn í sögu félagsins sem sætanýting fer yfir 80 prósentustig í aprílmánuði. Farþegum fjölgaði á öllum mörkuðum, en þó mest á N-Atlantshafsmarkaðnum þar sem aukningin nam 34%. Aukningin á ferðamannamarkaðinum til Íslands nam 13%.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru um 28 þúsund í apríl, sem er lækkun um 4% á milli ára. Sætanýting nam 68,2% og var óbreytt frá fyrra ári. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 14% m.v. apríl á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 30% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 20% frá apríl á síðasta ári. Herbergjanýting var 66,8%, eða 3 prósentustigum hærri en í apríl 2011.
INTERNATIONAL FLIGHTS | APR 12 | CHG (%) | YTD 12 | CHG (%) |
Number of Passengers (PAX) | 136,554 | 19% | 441,460 | 18% |
Load Factor (%) | 81.5% | 2.0 ppt | 77.2% | 3.7 ppt |
Available Seat KM (ASK´000) | 471,310 | 19% | 1,570,045 | 13% |
REGIONAL AND GREENLAND FLIGHS | APR 12 | CHG (%) | YTD 12 | CHG (%) |
Number of Passengers (PAX) | 27,879 | -4% | 108,407 | 2% |
Load Factor (%) | 68.2% | -0.1 ppt | 70.0% | 1.1 ppt |
Available Seat KM (ASK´000) | 13,532 | -7% | 49,348 | 0% |
CAPACITY | APR 12 | CHG (%) | YTD 12 | CHG (%) |
Fleet Utilization (%) | 91.7% | -2.9 ppt | 88.2% | -6.8 ppt |
Sold Block Hours | 2,568 | -14% | 10,681 | -7% |
CARGO | APR 12 | CHG (%) | YTD 12 | CHG (%) |
Available Tonne KM (ATK´000) | 13,097 | 11% | 49,790 | 10% |
Freight Tonne KM (FTK´000) | 7,279 | 30% | 29,409 | 22% |
HOTELS | APR 12 | CHG (%) | YTD 12 | CHG (%) |
Available Hotel Room Nights | 19,146 | 20% | 73,228 | 15% |
Sold Hotel Room Nights | 12,793 | 26% | 46,213 | 31% |
Utilization of Hotel Rooms | 66.8% | 3.0 ppt | 63.1% | 7.8 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010