Félagið flutti 172 þúsund farþega í millilandaflugi í október og voru þeir 18% fleiri en í október á síðasta ári. Framboðsaukning var 21% á milli ára. Sætanýting nam 80,6% samanborið við 81,4% í október 2011. Farþegum fjölgaði mest á N-Atlantshafsmarkaðinum líkt og í fyrri mánuðum eða um 37%. Farþegaaukning á ferðmannamarkaðinum til Íslands nam 16%. Fjöldi farþega í millilandaflugi á tímabilinu janúar - október nam 1,77 milljónum sem er umfram farþegafjölda alls ársins 2011 sem var 1,75 milljónir.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru um 29 þúsund í október og fækkaði um 1% á milli ára. Sætanýting nam 76,6% og jókst um 9,3 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 2% m.v. október á síðasta ári, þar sem fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra. Fraktflutningar jukust um 14% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 24% frá október á síðasta ári. Herbergjanýting var 67,6% og var 4,3 prósentustigum hærri en í október 2011.
MILLILANDAFLUG | OKT 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 172.015 | 18% | 1.769.887 | 15% |
Sætanýting | 80,6% | -0,8 ppt | 81,6% | 1,8 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 623.679 | 21% | 6.195.498 | 14% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | OKT 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 28.971 | -1% | 295.132 | 0% |
Sætanýting | 76,6% | 9,3 ppt | 69,1% | 0,0 ppt |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 12.315 | -12% | 156.091 | 0% |
LEIGUFLUG | OKT 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 100,0% | 0,0 ppt | 93,1% | 0,0 ppt |
Seldir blokktímar | 2.551 | -2% | 26.560 | -9% |
FRAKTFLUTNINGAR | OKT 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 16.094 | 12% | 154.885 | 7% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.266 | 14% | 74.476 | 18% |
HÓTEL | OKT 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.940 | 24% | 249.094 | 15% |
Seldar gistinætur | 15.512 | 33% | 185.824 | 21% |
Herbergjanýting | 67,6% | 4,3 ppt | 74,6% | 3,7 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010