Félagið flutti um 120 þúsund farþega í millilandaflugi í desember og voru þeir 20% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning var 27% á milli ára. Sætanýting nam 72,7% samanborið við 74,3% í desember 2011. Árið 2012 flutti félagið í heild rúmar 2 milljónir farþega sem er metfjöldi farþega frá upphafi. Aukning farþega frá fyrra ári var 16%.
Farþegar í innanlands- og Grænlandsflugi voru rúmlega 22 þúsund í desember sem er lækkun um 9% á milli ára. Sætanýting nam 66,5% og jókst um 3,6 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 17% m.v. desember á síðasta ári. Fraktvélar í leiguflugsverkefnum voru einni færri en í fyrra ásamt því að nýting leiguvéla minnkaði vegna viðhalds. Fraktflutningar drógust saman um 2% á milli ára. Framboð á gistinóttum hjá hótelum félagsins jókst um 28% frá desember á síðasta ári. Herbergjanýting var 46,1% og var 2,5 prósentustigum hærri en í desember 2011.
MILLILANDAFLUG | DES 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 119.580 | 20% | 2.020.377 | 16% |
Sætanýting | 72,7% | -1,6 %-stig | 80,6% | 1,4 %-stig |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000) | 476.244 | 27% | 7.175.753 | 16% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | DES 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 22.030 | -9% | 342.843 | -1% |
Sætanýting | 66,5% | 3,6 %-stig | 69,2% | 0,7%-stig |
Framboðnir sætiskm. ('000) | 10.534 | -14% | 177.786 | -1% |
LEIGUFLUG | DES 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 79,2% | -18,7 %-stig | 91,3% | -2,2 %-stig |
Seldir blokktímar | 2.404 | -17% | 31.104 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | DES 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 12.830 | 7% | 181.902 | 8% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 7.440 | -2% | 89.381 | 15% |
HÓTEL | DES 12 | BR. (%) | ÁTÞ 12 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.946 | 28% | 294.240 | 16% |
Seldar gistinætur | 10.582 | 35% | 210.114 | 22% |
Herbergjanýting | 46,1% | 2,5 %-stig | 71,4% | 3,5 %-stig |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010