Í desember flutti félagið 141 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 18% fleiri en í desember á síðasta ári. Framboðsaukning á milli ára nam 15% og sætanýting var 76,2% samanborið við 72,6% á sama tíma í fyrra.
Farþegar í millilandaflugi félagsins hafa aldrei verið fleiri en á árinu 2013. Þeir voru alls 2.257.305 og fjölgaði um 12% frá árinu 2012. Árleg aukning undanfarin ár hefur numið 12-18% og eru farþegar félagsins nú orðnir einni milljón fleiri en árið 2009.
Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru tæp 20 þúsund í desember og fækkaði um 10% á milli ára. Framboð félagsins var dregið saman um 10% samanborið við desember 2012. Sætanýting nam 65.0% og lækkaði um 1,5 prósentustig á milli ára. Seldum blokktímum í leiguflugi fækkaði um 8% á milli ára. Fraktflutningar jukust um 9% frá því á síðasta ári. Herbergjanýting á hótelum félagsins var 45,7% samanborið við 46,1% í desember í fyrra.
MILLILANDAFLUG | DES 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 140.820 | 18% | 2.257.485 | 12% |
Sætanýting | 76,2% | 3,6 ppt | 79,3% | -1,2 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 547,5 | 15% | 8.320,3 | 16% |
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG | DES 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Fjöldi farþega | 19.752 | -10% | 307.309 | -11% |
Sætanýting | 65,0% | -1,5 ppt | 71,1% | 1,9 ppt |
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) | 9,5 | -10% | 154,5 | -13% |
LEIGUFLUG | DES 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Flugvélanýting | 90,9% | 11,7 ppt | 91,0% | -0,3 ppt |
Seldir blokktímar | 2.219 | -8% | 28.089 | -10% |
FRAKTFLUTNINGAR | DES 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) | 14.206 | 10% | 201.796 | 9% |
Seldir tonnkm. (FTK´000) | 8.107 | 9% | 94.769 | 6% |
HÓTEL | DES 13 | BR. (%) | ÁTÞ 13 | BR. (%) |
Framboðnar gistinætur | 22.940 | 0% | 314.603 | 7% |
Seldar gistinætur | 10.481 | -1% | 222.320 | 6% |
Herbergjanýting | 45,7% | -0,4 ppt | 70,7% | -0,7 ppt |
Nánari upplýsingar veita:
Bogi Nils Bogason, framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir, forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010