Flutningatölur mars 2015


Í mars flutti félagið 183 þúsund farþega í millilandaflugi og voru þeir 15% fleiri en á síðasta ári. Framboðsaukning  á milli ára nam 7%. Sætanýting var 82,7% og jókst um 4,4 prósentustig á milli ára og hefur aldrei verið hærri í mars áður.

Farþegar í innanlandsflugi og Grænlandsflugi voru 23 þúsund í mars sem er fækkun um 4% á milli ára.  Framboð félagsins var dregið saman um 3% samanborið við mars 2014. Sætanýting nam 72,7% og jókst um 0,5 prósentustig á milli ára. Seldir blokktímar í leiguflugi jukust um 3% á milli ára.  Fraktflutningar jukust um 2% frá því á síðasta ári. Seldum gistinóttum á hótelum félagsins fjölgaði um 0.5% miðað við mars á síðasta ári. Herbergjanýting var 78,8% samanborið við 78,5% í fyrra.

   

MILLILANDAFLUG MAR 15 MAR 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 183.203 159.352 15% 477.370 399.962 19%
Sætanýting 82,7% 78,3% 4,4 %-stig 79,2% 74,3% 4,9 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 656,9 615,9 7% 1.775,8 1.578,5 12%
             
INNANLANDSFLUG OG GRÆNLANDSFLUG MAR 15 MAR 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Fjöldi farþega 23.183 24.089 -4% 63.113 65.122 -3%
Sætanýting 72,7% 72,2% 0,5 %-stig 71,4% 70,5% 0,8 %-stig
Framboðnir sætiskm. (ASK'000.000) 10,7 11,1 -3% 28,4 29,5 -4%
             
LEIGUFLUG MAR 15 MAR 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Flugvélanýting 100,0% 100,0% 0,0 %-stig 95,8% 92,2% 3,6 %-stig
Seldir blokktímar 1.863 1.807 3% 5.217 6.113 -15%
             
FRAKTFLUTNINGAR MAR 15 MAR 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnir tonnkm. (ATK´000) 17.046 15.241 12% 46.641 41.297 13%
Seldir tonnkm. (FTK´000) 9.013 8.799 2% 24.127 24.285 -1%
             
HÓTEL MAR 15 MAR 14 BR. (%) ÁTÞ 15 ÁTÞ 14 BR. (%)
Framboðnar gistinætur 22.909 22.909 0% 66.510 66.569 0%
Seldar gistinætur 18.061 17.973 0,5% 49.989 44.812 12%
Herbergjanýting 78,8% 78,5% 0,4 %-stig 75,2% 67,3% 7,8 %-stig

 

Nánari upplýsingar veita:

Bogi Nils Bogason framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group s: 665-8801
Íris Hulda Þórisdóttir forstöðumaður fjárfestatengsla Icelandair Group s: 840-7010


Pièces jointes

Traffic Data - March.pdf