logo.jpg
Source : Icelandair Group hf.

Niðurstaða fundar skuldabréfaeigenda

Fundur skuldabréfaeigenda skuldabréfaflokksins ICEAIR 15 1 með ISIN IS0000025427 var haldinn á Icelandair Hotel Reykajvík Natura, fimmtudaginn 15.nóvember 2018, kl.16:30.

Mætt var fyrir 96.15% skuldabréfaeigenda.

Á dagskrá fundarins var tillaga um skilmálabreytingu sem felur í sér frest til 30. nóvember 2018 til að uppfylla fjárhagslega skilmála útgáfulýsingar skuldabréfaflokksins. Samkvæmt útgáfulýsingu skuldabréfaflokksins myndast gjaldfellingarheimild við brot á fjárhagslegum skilmálum og sérstökum skilmálum. Gjaldfellingarheimildin er svohljóðandi: „Við brot á fjárhagslegum skilmálum og sérstökum skilmálum skuldabréfaflokks þessa myndast gjaldfellingarheimild.“

Lagt var til að gjaldfellingarheimildinni verði breytt og hún verði svohljóðandi:
„Við brot á fjárhagslegum skilmálum og sérstökum skilmálum skuldabréfaflokks þessa myndast gjaldfellingarheimild. Gjaldfellingarheimild vegna stöðu fjárhagslegra skilmála þann 30. september 2018, sem varða hámarksskuldsetningu og hámarksskuldsetningu II, skal myndast 30. nóvember 2018 hafi fjárhagslegum skilmálum ekki verið fullnægt fyrir þann tíma.“ 

Tillagan var samþykkt einróma.

Nánari upplýsingar veitir:
Bogi Nils Bogason starfandi forstjóri
bogi@icelandairgroup.is
+354 5050300