Eik fasteignafélag hf.: Birting ársuppgjörs 2019 þann 10. mars - Kynningarfundur 11. mars


Eik fasteignafélag hf. mun birta ársuppgjör fyrir árið 2019 eftir lokun markaða þriðjudaginn 10. mars n.k.

Opinn kynningarfundur verður haldinn miðvikudaginn 11. mars n.k. klukkan 8:30 á Hóteli 1919 í fundarherberginu Goðafoss, Pósthússtræti 2. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8:00.

Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.