Eik fasteignafélag hf.: Birting árshlutauppgjörs þann 29. apríl - Kynningarfundur 30. apríl


Eik fasteignafélag hf. mun birta árshlutauppgjör fyrir fyrsta ársfjórðung 2020 eftir lokun markaða miðvikudaginn 29. apríl nk.

Rafrænn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 30. apríl nk. klukkan 8:30. Garðar Hannes Friðjónsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.

​Tengill á fundinn mun verða sendur út samhliða birtingu árshlutauppgjörsins.