Brim - Guðmundur Kristjánsson lætur af störfum sem forstjóri Brims hf.


Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims hf., hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Brims hf., af persónulegum ástæðum og hefur stjórn félagsins samþykkt það á reglulegum stjórnarfundi sem fór fram í dag.

Kristján Þ. Davíðsson, stjórnarformaður, hefur þar með tekið tímabundið við verkefnum og skyldum forstjóra og mun gera það þangað til að nýr forstjóri hefur verið ráðinn.

Guðmundur situr eftir sem áður í stjórn félagsins.