Almenna leigufélagið ehf: Upplýsingar úr fjárfestakynningu


Upplýsingar úr fjárfestakynningu

Í dag, þann 16. júní 2020, klukkan 9:00, verður haldinn upplýsingafundur með hlutdeildarskírteinishöfum í Almenna leigufélaginu eignarhaldssjóði (ALE), eiganda alls hlutafjár í Almenna leigufélaginu ehf. Á fundinum verður farið yfir ársuppgjör Almenna leigufélagsins ehf. fyrir árið 2019 sem var birt þann 30. mars 2020, auk þess sem stjórnendur munu kynna stöðu félagsins í dag, þær aðgerðir sem gripið var til í kjölfar á Covid-19 og horfur í rekstri félagsins. Á fundinum verða birtar eftirfarandi upplýsingar um rekstur og stöðu Almenna leigufélagsins.

  • Langtímaleigutekjur voru 836 m.kr. fyrstu fjóra mánuði ársins, 2 m.kr. hærri en á sama tímabili í fyrra þrátt fyrir að íbúðum hafi fækkað um 42 á milli tímabila.
  • EBITDA fyrstu fjóra mánuði ársins var 523 m.kr. en var 522 m.kr. á sama tímabili 2019.
  • Um 40% af skuldum félagsins bera breytilega vexti og vaxtalækkanir Seðlabankans hafa haft veruleg áhrif á vaxtakjör þeirra.
    • Vaxtagjöld samstæðunnar voru 1.413 m.kr. árið 2019, en í kjölfar síðustu stýrivaxtalækkunar eru tólf mánaða vextir af skuldum félagsins 1.080 m.kr.
    • Vegnir verðtryggðir vextir á skuldum samstæðunnar voru 3,25% þann 31.5.2020 og vegnir óverðtryggðir vextir voru 4,16% á sama tíma.
  • Lausafjárstaða félagsins hefur styrkst umtalsvert frá áramótum og var handbært fé 1.580 m.kr. þann 31.5.2020 auk þess sem félagið á óádregna lánalínu.
  • Í byrjun árs voru 114 af 1.230 íbúðum félagsins í skammtímaleigu. Í kjölfar Covid-19 var ákveðið að færa þær í langtímaleigu og er 91 þeirra þegar orðnar tekjuberandi.
  • Í mars 2020 kynnti félagið greiðsludreifingarúrræði fyrir viðskiptavini í langtímaleigu vegna Covid-19. Um 6% viðskiptavina hafa nýtt sér úrræðið og dreift greiðslum sem nema tæplega 1% af árstekjum félagsins.
  • Félagið hefur síðustu ár unnið að því að auka rekstrarhagræði með sölu óhagkvæmra eininga úr eignasafninu. Frá áramótum hafa 45 íbúðir verið seldar og 10 til viðbótar seldar með fyrirvara um fjármögnun. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir sölu um 180 íbúða á árunum 2020-2022.
  • Miðað við núverandi forsendur telja stjórnendur að EBITDA ársins 2020 muni liggja á bilinu 1.400-1.600 m.kr.

Ofangreindar upplýsingar eru veittar í því skyni að stuðla að ríkri upplýsingagjöf til markaðarins, en með tilkynningu þessari er gengið lengra í slíkri upplýsingagjöf en skylt er samkvæmt lögum nr. 108/2007 um verðbréfaviðskipti.

Nánari upplýsingar veitir María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins, í síma 774 0604.