Almenna leigufélagið ehf.: Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148, AL231124 og AL260128


Staðfesting og könnun eftirlitsaðila á sérstökum skilyrðum AL260148, AL231124 og AL260128

KPMG er eftirlitsaðili skuldabréfaflokkanna AL260148, AL231124 og AL260128. Eftirlitsaðili hefur það hlutverk að kanna og staðfesta sjálfstæða útreikninga útgefanda á fjárhagslegum og sérstökum skilyrðum skuldabréfaflokkanna.

KPMG hefur nú framkvæmt könnun á útreikningi sérstakra skilyrða skuldabréfaflokkanna.

Niðurstaða könnunar KPMG er í samræmi við útreikninga útgefanda þess efnis að skuldabréfaflokkarnir AL260148, AL231124 og AL260128 standist öll fjárhagsleg og sérstök skilyrði miðað við dagsetninguna 30.6.2020.

Niðurstöðu könnunarinnar má sjá hér í viðhengi.

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Rúnar Pálsson, fjármálastjóri, í síma 848-5290 eða sigurdur@al.is

Viðhengi



Pièces jointes

AL260148, AL231124 og AL260128 - Stadfesting vegna 30.6.2020