REITIR: Útboð á skuldabréfum 7. maí 2024 í nýjum flokki


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 7. maí næstkomandi.

Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum skuldabréfaflokki REITIR150534. Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Greiðslur vaxta og afborgana eru á tveggja mánaða fresti, nafnvextir ráðast af niðurstöðu útboðs.

Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu ávöxtunarkröfu sem tekið er. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er miðvikudagurinn 15. maí 2024. Verður óskað eftir því að nýju bréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland samhliða.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, einar@reitir.is, sími 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.