Stjórn Icelandair Group hf (ICEAIR) hefur ákveðið á grundvelli kaupréttaráætlunar félagsins að gefa út kauprétti að hlutafé í félaginu til forstjóra og lykilstjórnenda Icelandair Group. Samningarnir eru til 3ja ára og taka gildi í dag. Um er að ræða kauprétti að samtals 45,300.000 hlutum til forstjóra og framkvæmdastjóra Icelandair Group hf og dótturfélaga samtæðunnar, samtals 17 manns. Rétthöfum er heimilit að nýta þriðjung kaupréttarins í 4 vikur frá 3. janúar ár hvert, í fyrsta skipti árið 2008. Samningsgengi er 27,50 sem er vegið meðalgengi hluta í félaginu í Kauphöll Íslands síðustu 10 viðskiptadaga fyrir gerð hvers samnings, samanber 10. gr. laga um tekjuskatt nr 90/2003. Kauprétturinn er bundinn því skilyrði að starfsmaðurinn sé áfram í starfi innan samstæðunnar. Kaupréttir að 5.000.0000 hluta eru veittir eftirtöldum tilkynningarskyldum fruminnherjum, sbr. 64. gr. laga nr. 33/2003. Nafn fruminnherja: Jón Karl Ólafsson Tengsl fruminnherja við útgefanda: forstjóri Fjöldi hluta m.v kaupréttaráætlun 2006: 5.000.000 Fjöldi hluta í eigu fruminnherja: 103,703 hlutir Fjöldi hluta í eigu fjárhagslega tengdra aðila: 18,518,519 hlutir Nánari upplýsingar gefa Jón Karl Ólafsson, forstjóri félagsins og Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri, s. 5050300
Stjórn Icelandair Group semur um kauprétti fyrir stjórnendur félagsins
| Source: Icelandair Group hf.