Stjórn Icelandair Group Holding semur um kauprétti fyrir stjórnendur félagsins


Leiðrétting:  Í tilkynningunni stóð:  Kaupréttir að 5.000.0000 hluta eru veittir eftirtöldum tilkynningarskyldum fruminnherjum, sbr. 64. gr. laga nr. 33/2003.  En átti að standa:  Kaupréttir að 5.000.000 hluta eru veittir eftirtöldum tilkynningarskyldum fruminnherjum, sbr. 64. gr. laga nr. 33/2003. 


Stjórn Icelandair Group Holding hf (ICEAIR)  hefur ákveðið á grundvelli kaupréttaráætlunar félagsins að gefa út kauprétti að hlutafé í félaginu til forstjóra og lykilstjórnenda Icelandair Group. Samningarnir eru til 3ja ára og taka gildi í dag.

Um er að ræða kauprétti að samtals 45,300.000 hlutum til forstjóra og framkvæmdastjóra Icelandair Group hf og dótturfélaga samtæðunnar, samtals 17 manns. 

Rétthöfum er heimilit að nýta þriðjung kaupréttarins í 4 vikur frá 3. janúar ár hvert, í fyrsta skipti árið 2008.  

Samningsgengi er  27,50  sem er vegið meðalgengi hluta í félaginu í Kauphöll Íslands síðustu 10 viðskiptadaga fyrir gerð hvers samnings, samanber 10. gr. laga um tekjuskatt nr 90/2003. 

Kauprétturinn er bundinn því skilyrði að starfsmaðurinn sé áfram í starfi innan samstæðunnar.

Kaupréttir að 5.000.000 hluta er veittur eftirtöldum tilkynningarskyldum fruminnherja, sbr. 64. gr. laga nr. 33/2003.

Nafn fruminnherja: Jón Karl Ólafsson
Tengsl fruminnherja við útgefanda: forstjóri
Fjöldi hluta m.v kaupréttaráætlun 2006: 5.000.000 
Fjöldi hluta í eigu fruminnherja: 103,703 hlutir
Fjöldi hluta í eigu fjárhagslega tengdra aðila:  18,518,519 hlutir

Nánari upplýsingar gefa Jón Karl Ólafsson, forstjóri félagsins og Guðjón Arngrímsson, upplýsingastjóri, s. 5050300