Icelandair Group gerir 3,5 milljarða króna flugvélaleigusamninga við Israir


Latcharter, lettneskt leiguflugfélag í eigu Loftleiða-Icelandic, dótturfélags Icelandair Group, hefur gert samning við ísraelska flugfélagið Israir um leigu á tveimur Airbus A320 farþegaflugvélum til þriggja ára. Jafnframt hefur Loftleiðir-Icelandic framlengt leigu á Boeing 767-300ER breiðþotu til sama félags til loka þessa árs. Umfang þessara samninga dótturfélaga Icelandair Group er rúmlega 3,5 milljarðar króna, eða um 50 milljónir dollara.

Airbus vélarnar, sem voru áður í rekstri hjá Air Canada, verða fyrstu Airbus þoturnar sem notaðar eru hjá ísraelskum flugfélögum. Latcharter tekur vélarnar á leigu frá bandaríska flugvélaleigufyrirtækinu KJ Aviation. 

Loftleiðir eignuðust Latcharter á miðju síðasta ári. Félagið hafði þá tvær Airbus vélar í rekstri, en sá floti tvöfaldast með þessum samningi.  Gert er ráð fyrir að floti félagsins vaxi enn frekar á næstunni.  Framkvæmdastjóri Latcharter er Garðar Forberg, sem áður starfaði hjá Íslandsflugi og Air Atlanta.

Guðni Hreinsson, framkvæmdastjóri Loftleiða-Icelandic segir:
"Samstarf félagsins við Israir hefur nú staðið í þrjú ár og hefur reynst báðum félögum happadrjúgt. Samningurinn um Boeing 767-300ER vélina hefur gengið vel, og því var eðlilegt að samstarfið væri útvíkkað þegar kom að því að endurnýja flota fyrir styttri leiðir félagsins. Meginmarkmiðið með kaupunum á Latcharter var að breikka vöru- og þjónustuframboð Loftleiða-Icelandic á sviði alþjóðlegra flugvélaviðskipta. Það er ánægjulegt að sjá að þessi stefna okkar er að skila árangri með svo áþreifanlegum hætti."

Israir er í eigu stærsta fjárfestingafélags í Ísrael, Ganden Group sem  á hlut í 15 ísraelskum félögum á sviði flutinga, flugs, tækni og fasteigna.

Nánari upplýsingar veitir Guðni Hreinsson í síma +354 5050334.