Tæknival - Tekið til gjaldþrotaskipta


Tæknival hf. hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta  vegna langvarandi rekstrarerfiðleika og erfiðrar skuldastöðu. Skiptabeiðnin var gerð á grundvelli 2. mgr. 64. gr. laga um gjaldþrotaskipti, en ljóst er að félagið getur ekki staðið í fullum skilum við lánardrottna  þegar kröfur falla í gjalddaga og ljóst er að greiðsluörðugleikar munu ekki líða hjá innan skamms. Skiptastjóri hefur verið skipaður Sigurmar K. Albertsson hrl.