Leiðrétting: Rangt ártal í sjóðstreymi. Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu eykst um 136,8% Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu var 1.457,8 millj. kr. fyrir árið 2006, samanborið við 615,6 millj. kr. fyrir árið 2005. Aukningin milli ára er 136,8%. Helstu lykiltölur og aðrar upplýsingar um rekstur Sparisjóðs Mýrasýslu árið 2006 má sjá hér að neðan. Dótturfélag Sparisjóðs Mýrasýslu, Sparisjóður Siglufjarðar, keypti útibú Glitnis hf. á Siglufirði í júní 2006. Efnahagur útibúsins er kominn að fullu inn í samanburðartölur samstæðunnar, en rekstur hans frá 24. júní 2006. Rekstrarreikningur 2006 2005 2004 2003 2002 Rekstur: Vaxtatekjur 3.219.182 1.883.518 1.244.675 1.119.397 913.418 Vaxtagjöld 2.510.057 1.233.853 754.549 657.918 601.031 Hreinar vaxtatekjur 709.125 649.665 490.126 461.479 312.387 Aðrar rekstrartekjur 2.233.426 1.052.118 427.157 417.416 172.827 Hreinar rekstrartekjur 2.942.551 1.701.783 917.283 878.895 485.214 Önnur rekstrargjöld 959.170 667.239 472.997 426.409 246.107 Hagnaður fyrir framlag í afskriftareikning 1.983.381 1.034.544 444.286 452.486 239.107 Framlag í afskriftareikning útlana 251.226 284.040 219.278 280.907 112.061 Hagnaður fyrir skatta 1.732.155 750.504 225.008 171.579 127.046 Skattar -274.394 -134.862 -32.767 -38.063 -26.522 Hagnaður ársins 1.457.761 615.642 192.241 133.516 100.524 Efnahagsreikningur Eignir : 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2002 Sjóður og kröfur á lánastofnanir 884.066 971.598 544.432 385,7 339,5 Útlán 27.099.090 20.949.371 13.166.491 10.219,5 7.485,0 Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum 4.719.539 2.971.382 1.592.659 1.634,4 1.217,1 Aðrar eignir 1.047.196 805.826 566.763 527,8 347,0 Eignir samtals 33.749.891 25.698.177 15.870.345 12.767,5 9.388,6 Skuldir og eigið fé : 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004 31.12.2003 31.12.2002 Skuldir við lánastofnanir 2.849.778 1.624.611 951.222 542,5 713,2 Innlán 14.442.926 11.329.485 6.920.889 6.280,9 4.206,2 Lántaka 10.430.860 9.021.993 5.723.100 3.945,7 2.801,3 Aðrar skuldir og skuldbindingar 1.257.076 701.173 483.260 442,5 334,9 Víkjandi lán 1.225.501 926.217 378.693 344,7 255,0 Eigið fé 3.543.750 2.094.698 1.413.181 1.211,2 1.078,0 Skuldir og eigið fé samtals 33.749.891 25.698.177 15.870.345 12.767,5 9.388,6 Fjárhæðir í þúsundum króna Kennitölur úr rekstri: 2005 2005 2004 2003 2002 Eiginfjárhlutfall skv. CAD 11,7% 11,0% 11,0% 14,4% 13,6% Innlánsaukning 27,5% 63,7% 10,2% 49,3% 7,0% Útlánsaukning 29,4% 59,1% 28,8% 36,5% 9,6% Rekstrarkostnaður af hreinum rekstrartekjum 32,6% 39,2% 51,6% 48,5% 50,7% Rekstrarkostnaður af eignum 2,8% 2,6% 3,0% 3,3% 2,6% Rekstur samstæðunnar " Samstæðan skilaði 1.457,8 millj. kr. hagnaði eftir skatta árið 2006, samanborið við 615,6 millj. kr. á árinu 2005. Aukningin er 136,8%. " Vaxtatekjur námu 3.219,2 millj. kr. árið 2006 en það er 70,9% hækkun frá árinu 2005. " Vaxtagjöld hækkuðu um 103,4% milli ára og námu 2.510,1 millj. kr. árið 2006. " Hreinar vaxtatekjur námu 709,1 millj. kr. árið 2006 og hækkuðu því um 9,2% á milli ára. " Hreinar rekstrartekjur voru 2.942,6 millj. kr. á árinu á móti 1.701,8 millj. kr. árið 2005. Hreinar rekstrartekjur hafa hækkað um 72,9% á árinu 2006. " Framlag í afskriftarreikning útlána nam 251,2 millj. kr. á árinu sem er lækkun um 11,6% frá árinu 2005. Í árslok 2006 eru 657,1 millj. kr. í afskriftareikningi útlána sem er 2,2% af útlánum og veittum ábyrgðum sparisjóðsins. " Önnur rekstrargjöld sparisjóðsins voru 959,2 millj. kr. árið 2006 en voru 667,2 millj. kr. árið 2005, hækkunin er 43,8%. " Arðsemi eigin fjár Sparisjóðs Mýrasýslu var 69,9% árið 2006 miðað við 41,6% árið 2005. " Rekstrarkostnaður sem hlutfall af hreinum rekstrartekjum er 32,6% miðað við 39,2% fyrir árið 2005. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum er nú 2,8% miðað við 2,6% árið 2005. Efnahagur og eigið fé samstæðunnar " Heildareignir samstæðunnar eru 33.749,9 millj. kr. miðað við 25.698,2 millj.kr. í lok árs 2005, hafa þær vaxið um 31,3% milli áranna 2005 og 2006. " Útlán samstæðunnar hafa aukist um 29,4% á árinu og nema þau 26.894,0 millj. kr. í árslok 2006. " Innlán samstæðunnar hafa aukist um 27,5% á árinu og nema 14.442,9 millj. kr. í árslok 2006. " Eigið fé Sparisjóðs Mýrasýslu var 3.543,8 millj. kr. 31. desember 2006 en var 2.094,7 millj. kr. í árslok 2005, aukningin er 69,2%. " Eiginfjárhlutfall samstæðunnar samkvæmt CAD-reglum er 11,7% 31. desember 2006 en var 11,0% þann 31. desember 2005. Fréttir af starfsemi " Sparisjóður Siglufjarðar keypti í 24. júní 2006 rekstur og eignir útibús Glitnis hf. á Siglufirði. Eignir og skuldir voru yfirteknar við kaupin og eru hluti af ársreikningi Sparisjóðs Siglufjarðar og samstæðureikningsskilum Sparisjóðs Mýrasýslu. Sparisjóður Siglufjarðar flutti höfuðstöðvar sínar að Aðalgötu 34 í kjölfarið. " Uppgjör samstæðunnar samanstendur af uppgjöri móðurfélags ásamt dótturfélögum þess. " Á árinu 2007 stendur fyrir dyrum að sameina Sparisjóð Skagafjarðar og Sparisjóð Siglufjarðar. " Áætlanir fyrir árið 2007 gera ráð fyrir að rekstur og afkoma Sparisjóðs Mýrasýslu verði í takt við afkomu ársins 2006. " Frá og með 1. janúar 2007 mun Sparisjóður Mýrasýslu gera reikningsskil í samræmi við IFRS. Aðalfundur Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn föstudaginn 2. mars 2007. Stjórn sparisjóðsins leggur til að greidd verði 3,1 millj. kr. í arð á árinu 2006 vegna ársins 2006.
Sparisjóður Mýrasýslu - Ársuppgjör 2006
| Source: Sparisjóður Mýrasýslu