Sparisjóður Mýrasýslu - Ársuppgjör 2006


Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu eykst um 136,8%

Hagnaður Sparisjóðs Mýrasýslu var 1.457,8 millj. kr. fyrir árið 2006, samanborið við 615,6 millj. kr. fyrir árið 2005. Aukningin milli ára er 136,8%. Helstu lykiltölur og aðrar upplýsingar um rekstur Sparisjóðs Mýrasýslu árið 2006 má sjá hér að neðan.

Dótturfélag Sparisjóðs Mýrasýslu, Sparisjóður Siglufjarðar, keypti útibú Glitnis hf. á Siglufirði í júní 2006. Efnahagur útibúsins er kominn að fullu inn í samanburðartölur samstæðunnar, en rekstur hans frá 24. júní 2006.

Rekstrarreikningur					
					
	2006	2005	2004	2003	2002
Rekstur:					
Vaxtatekjur	3.219.182	1.883.518	1.244.675	1.119.397	913.418
Vaxtagjöld	2.510.057	1.233.853	754.549	657.918	601.031
Hreinar vaxtatekjur	709.125	649.665	490.126	461.479	312.387
Aðrar rekstrartekjur	2.233.426	1.052.118	427.157	417.416	172.827
Hreinar rekstrartekjur	2.942.551	1.701.783	917.283	878.895	485.214
Önnur rekstrargjöld	959.170	667.239	472.997	426.409	246.107
Hagnaður fyrir framlag í afskriftareikning	1.983.381	1.034.544	444.286	452.486	239.107
Framlag í afskriftareikning útlana	251.226	284.040	219.278	280.907	112.061
Hagnaður fyrir skatta	1.732.155	750.504	225.008	171.579	127.046
Skattar	-274.394	-134.862	-32.767	-38.063	-26.522
Hagnaður ársins	1.457.761	615.642	192.241	133.516	100.524
					
Efnahagsreikningur
					
Eignir :	31.12.2006	31.12.2005	31.12.2004	31.12.2003	31.12.2002
Sjóður og kröfur á lánastofnanir	884.066	971.598	544.432	385,7	339,5
Útlán	27.099.090	20.949.371	13.166.491	10.219,5	7.485,0
Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum	4.719.539	2.971.382	1.592.659	1.634,4	1.217,1
Aðrar eignir	1.047.196	805.826	566.763	527,8	347,0
Eignir samtals	33.749.891	25.698.177	15.870.345	12.767,5	9.388,6
					
Skuldir og eigið fé  :	31.12.2006	31.12.2005	31.12.2004	31.12.2003	31.12.2002
Skuldir við lánastofnanir	2.849.778	1.624.611	951.222	542,5	713,2
Innlán	14.442.926	11.329.485	6.920.889	6.280,9	4.206,2
Lántaka 	10.430.860	9.021.993	5.723.100	3.945,7	2.801,3
Aðrar skuldir og skuldbindingar	1.257.076	701.173	483.260	442,5	334,9
Víkjandi lán	1.225.501	926.217	378.693	344,7	255,0
Eigið fé	3.543.750	2.094.698	1.413.181	1.211,2	1.078,0
Skuldir og eigið fé samtals	33.749.891	25.698.177	15.870.345	12.767,5	9.388,6
					

Fjárhæðir í þúsundum króna
					
Kennitölur úr rekstri:	2005	2005	2004	2003	2002
Eiginfjárhlutfall skv. CAD	11,7%	11,0%	11,0%	14,4%	13,6%
Innlánsaukning	27,5%	63,7%	10,2%	49,3%	7,0%
Útlánsaukning	29,4%	59,1%	28,8%	36,5%	9,6%
Rekstrarkostnaður af hreinum rekstrartekjum	32,6%	39,2%	51,6%	48,5%	50,7%
Rekstrarkostnaður af eignum	2,8%	2,6%	3,0%	3,3%	2,6%

Rekstur samstæðunnar
"	Samstæðan skilaði 1.457,8 millj. kr. hagnaði eftir skatta árið 2006, samanborið við 615,6 millj. kr. á árinu 2005. Aukningin er 136,8%.
"	Vaxtatekjur námu 3.219,2 millj. kr. árið 2006 en það er 70,9% hækkun frá árinu 2005. 
"	Vaxtagjöld hækkuðu um 103,4% milli ára og námu 2.510,1 millj. kr. árið 2006. 
"	Hreinar vaxtatekjur námu 709,1 millj. kr. árið 2006 og hækkuðu því um 9,2% á milli ára.
"	Hreinar rekstrartekjur voru 2.942,6 millj. kr. á árinu á móti 1.701,8 millj. kr. árið 2005. Hreinar rekstrartekjur hafa hækkað um 72,9% á árinu 2006. 
"	Framlag í afskriftarreikning útlána nam 251,2 millj. kr. á árinu sem er lækkun um 11,6% frá árinu 2005. Í árslok 2006 eru 657,1 millj. kr. í afskriftareikningi útlána sem er 2,2% af útlánum og veittum ábyrgðum sparisjóðsins. 
"	Önnur rekstrargjöld sparisjóðsins voru 959,2 millj. kr. árið 2006 en voru 667,2 millj. kr. árið 2005, hækkunin er 43,8%. 
"	Arðsemi eigin fjár Sparisjóðs Mýrasýslu var 69,9% árið 2006 miðað við 41,6% árið 2005.
"	Rekstrarkostnaður sem hlutfall af hreinum rekstrartekjum er 32,6% miðað við 39,2% fyrir árið 2005. Rekstrarkostnaður sem hlutfall af eignum er nú 2,8% miðað við 2,6% árið 2005.

Efnahagur og eigið fé samstæðunnar
"	Heildareignir samstæðunnar eru 33.749,9 millj. kr. miðað við 25.698,2 millj.kr. í lok árs 2005, hafa þær vaxið um 31,3% milli áranna 2005 og 2006. 
"	Útlán samstæðunnar hafa aukist um 29,4% á árinu og nema þau 26.894,0 millj. kr. í árslok 2006. 
"	Innlán samstæðunnar hafa aukist um 27,5% á árinu og nema 14.442,9 millj. kr. í árslok 2006.
"	Eigið fé Sparisjóðs Mýrasýslu var 3.543,8 millj. kr. 31. desember 2006 en var 2.094,7 millj. kr. í árslok 2005, aukningin er 69,2%.
"	Eiginfjárhlutfall samstæðunnar samkvæmt CAD-reglum er 11,7% 31. desember 2006 en var 11,0% þann 31. desember 2005.

Fréttir af starfsemi
"	Sparisjóður Siglufjarðar keypti í 24. júní 2006 rekstur og eignir útibús Glitnis hf. á Siglufirði. Eignir og skuldir voru yfirteknar við kaupin og eru hluti af ársreikningi Sparisjóðs Siglufjarðar og samstæðureikningsskilum Sparisjóðs Mýrasýslu. Sparisjóður Siglufjarðar flutti höfuðstöðvar sínar að Aðalgötu 34 í kjölfarið.
"	Uppgjör samstæðunnar samanstendur af uppgjöri móðurfélags ásamt dótturfélögum þess.  
"	Á árinu 2007 stendur fyrir dyrum að sameina Sparisjóð Skagafjarðar og Sparisjóð Siglufjarðar.
"	Áætlanir fyrir árið 2007 gera ráð fyrir að rekstur og afkoma Sparisjóðs Mýrasýslu verði  í takt við afkomu ársins 2006.
"	Frá og með 1. janúar 2007 mun Sparisjóður Mýrasýslu gera reikningsskil í samræmi við IFRS.

Aðalfundur Sparisjóðs Mýrasýslu verður haldinn föstudaginn 2. mars 2007. Stjórn sparisjóðsins leggur til að greidd verði 3,1 millj. kr. í arð á árinu 2006 vegna ársins 2006.



Attachments

Sparisjour Myrasyslu 12 06.pdf