Vinnslustöðin - Ársuppgjör 2006


Stjórn Vinnslustöðvarinnar hf. samþykkti í dag uppgjör félagsins fyrir síðastliðið rekstrarár.  Þar kemur meðal annars fram eftirfarandi:

335 milljón króna hagnaður á rekstrarárinu

"	Hagnaður rekstrarársins var 335 milljónir króna og dróst saman um 107 milljónir króna frá fyrra ári þegar hann var 442 milljónir króna. 

"	Heildartekjur félagsins voru 5.802 milljónir króna og jukust um 1.396 milljónir króna frá fyrra ári.  Tekjur fiskvinnslu jukust um 47,1% en tekjur útgerðar jukust um 25,5%.  Rekstrargjöld jukust um 13,7%.

"	Framlegð félagsins (hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði) nam 1.776 milljónum króna eða 30,6% af tekjum og jókst um 910 milljónir króna frá fyrra ári en þá var framlegðarhlutfall 19,7%.

"	Veltufé frá rekstri nam 1.548 milljónum króna á árinu og var 26,7% af rekstrartekjum.  Veltufé frá rekstri jókst um 89% frá fyrra ári.   

"	Afskriftir lækkuðu um 16 milljónir króna frá fyrra ári og námu 344 milljónum króna.  

"	Niðurstaða fjármagnsliða var neikvæð um 889 milljónir króna.  Gengistap nam 796 milljónum króna en á síðasta rekstrarári var 280 milljón króna gengishagnaður.

"	Tekjur Hugins ehf., hlutdeildarfélags Vinnslustöðvarinnar, voru 640 milljónir króna og framlegð þess á tímabilinu var 98 milljónir króna.  Tap félagsins eftir skatta nam 233 milljónum króna, þar af nam gengistap félagsins 203 milljón króna.  Hlutdeild Vinnslustöðvarinnar í tapi Hugins ehf. nam 112 milljónum króna á rekstrarárinu. 

"	Gengið var frá kaupum á 49% hlut félagsins About Fish ehf. í árslok og af þeim ástæðum er ekki tekin hlutdeild í afkomu þess.  Rekstur félagsins gekk ágætlega, heildartekjur voru tæpar 1.100 milljónir króna  og nam hagnaður eftir skatta tæpum 9 milljónum króna á árinu.



248 milljón króna hagnaður á fjórða ársfjórðungi

Á fjórða ársfjórðungi, þ.e. 1. október til 31. desember 2006, voru tekjur 1.318 milljónir króna og rekstrargjöld námu 720 milljónum króna.  Framlegð tímabilsins var því 598 milljónir króna en 248 milljón króna hagnaður varð af rekstri fjórðungsins.  Tap var á rekstri félagsins á sama tímabili í fyrra að fjárhæð 38 milljónir króna.  Hlutdeild félagsins í hagnaði hlutdeildarfélagsins Hugins ehf. nam um 32 milljónum króna á fjórðungnum.

Rekstur Vinnslustöðvarinnar gekk vel á haustmánuðum.  Munar þar mestu um að stutt var að sækja síldarafla félagsins og var verulegur hluti aflans unninn til bræðslu sökum erfiðra stöðu á mörkuðum fyrir síldarafurðir til manneldis.


Efnahagur í árslok
 
Heildarskuldir og skuldbindingar Vinnslustöðvarinnar hf. hækkuðu um 676 milljónir króna frá upphafi árs til ársloka og eru 6.708 milljónir króna.  Nettóskuldir eru 4.467 milljónir króna en þær voru 4.731 milljónir króna  í lok síðasta árs og lækkuðu því um 264 milljónir króna.

Eigið fé lækkaði frá áramótum um 80 milljónir króna. Lækkun eigin fjár stafar fyrst og fremst af útgreiðslu arðs sem nam 445 milljónum króna.  Á móti hækkaði eigið fé um hagnað ársins að upphæð 335 milljónir króna og 31 milljón króna vegna mismunar á kaupum og úthlutun eigin bréfa til hluthafa.



Rekstrarhorfur á yfirstandandi ári

Rekstrarhorfur á yfirstandandi rekstrarári eru góðar og að óbreyttu er líklegt að tekjur og afkoma verði með svipuðum hætti og á síðasta ári ef gengissveiflur krónunnar eru undanskildar.  Afurðaverð er í flestum tilvikum hátt og ber þar sérstaklega að nefna mjöl og lýsi þar sem afurðaverð er í sögulegu hámarki.   Sveiflur á afurðaverði eru vel þekktar innan sjávarútvegsins og því vafasamt að gera ráð fyrir mjög háu afurðaverði til lengri tíma.  Þá er mikill þrýstingur til hækkunar ýmissa kostnaðarliða félagsins.  Af þeim sökum er vart hægt að gera ráð fyrir öðru en að framlegð lækki á árinu.  

Hagnaður Vinnslustöðvarinnar hf. er ávallt verulega mótaður af áhrifum gengis íslenskrar krónu þar sem nánast allar tekjur félagsins og verulegur hluti skulda þess er í erlendum myntum.  Í ár eru litlar líkur á jafn mikilli veikingu krónunnar og á síðasta ári og því bendir margt til þess að hagnaður félagsins verði meiri í ár en á síðasta ári.


Aðalfundur og tillögur um arð

Ákveðið hefur verið að halda aðalfund félagsins föstudaginn 4. maí 2007 í Akógeshúsinu og hefst fundurinn kl. 16:00.  Stjórn félagsins gerir tillögu um að arðgreiðsla nemi 30%. 
 


Birtingardagatal Vinnslustöðvarinnar hf.

1. ársfjórðungur 2007		4. maí 2007
2. ársfjórðungur 2007		Vika 30. júlí - 3. ágúst 2007
3. ársfjórðungur 2007 		Vika 29. október - 2. nóvember 2007
Ársuppgjör 2007			Vika 4.-8. febrúar 2008

Aðalfundur			4. maí 2007
Birting ársskýrslu 2006		4. maí 2007 

Greiðsla arðs			Stjórnin leggur til að greiddur verði 30% arður 



Frekari upplýsingar:
Sigurgeir B. Kristgeirsson, framkvæmdastjóri,
 í símum 488 8004 og 897 9607


Attachments

Vinnslustoin 12 2006.pdf Vinnslustoin - Lykiltolur.pdf