Á stjórnarfundi Nýsis hf. þann 18. ágúst 2006 var ákveðið að stækka skuldabréfaflokk félagsins NYSI 03 1 um 600 milljónir króna að nafnverði en flokkurinn er skráður í Kauphöll Íslands. Heildarnafnverð skuldabréfaflokksins er eftir stækkun 2.000 milljónir króna. Lokagjalddagi skuldabréfanna er í júlí 2008. Skuldabréfin voru seld í lokuðu útboði til fagfjárfesta og var MP Fjárfestingarbanki hf. umsjónaraðili skuldabréfaútboðsins. Nánari upplýsingar veitir Stefán Þórarinsson, stjórnarformaður félagsins í síma 899-7801 eða 540-6380.
Nýsir - Stækkun skuldabréfaflokks NYSI 03 1 um 600 m.kr.
| Source: Nýsir hf.