VBS Fjárfestingarbanki og fjárfestingafélagið FSP - Viðræður um samruna


Stjórnir VBS fjárfestingarbanka hf. og fjárfestingafélagsins FSP hf. hafa ákveðið að hefja viðræður um samruna félaganna. VBS fjárfestingarbanki hf er í eigu 80 hluthafa en FSP hf er fjárfestingarfélag í eigu sparisjóða og sparisjóðatendra félaga. Stefnt er að niðurstöðu viðræðna eins fljótt og verða má. Aðalfundi VBS fjárfestingabanka, sem fyrirhugaður var 23.febrúar, verður því frestað af þessum ástæðum. Komi til samruna félaganna verður til nýtt afl á fjármálamarkaði með fjölbreytta starfsemi og verðmæt tengsl við viðskiptavini og hluthafa. 
 
Nánari upplýsingar veita:
 
Jón Þórisson framkvæmdastjóri VBS fjárfestingarbanka í síma 894 0482
Kjartan Broddi Bragason frkv.stjóri FSP í síma 863 7360