Opinn kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 21. febrúar, á Hótel Nordica (Sal H). Jón Karl Ólafsson, forstjóri Icelandair Group mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningin hefst kl. 8:30. Kynningarfundi á ensku verður varpað á netinu kl. 13:00 þann 21. febrúar á slóðinni http://icelandairgroup.webex.com. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandair Group: www.icelandairgroup.is og í fréttakerfi Kauphallar Íslands.
Icelandair Group - Kynningarfundur fyrir markaðsaðila 21. febrúar nk.
| Source: Icelandair Group hf.