Sparisjóður Kópavogs - Ársuppgjör 2006


Hagnaður 511 m.kr., arðsemi 55,2%

Ársuppgjör Sparisjóðs Kópavogs er nú í fyrsta sinn byggt á alþjóðlegum reikningsskilastöðlum (IFRS). Fjallað er um áhrif af innleiðingu þessara reikningsskilastaðla í kafla 4 hér á eftir. Samanburðarfjárhæðum vegna ársins 2005 hefur verið breytt til samræmis við nýju reikningsskilareglurnar og eru niðurstöður ársuppgjöranna nú og í fyrra því sambærilegar. 

1. Helstu niðurstöður uppgjörsins eru þessar:
"	Hagnaður varð 511 m.kr. eftir skatta samanborið við 333 m.kr. hagnað á árinu 2005. Fyrir skatta nam hagnaðurinn 618 m.kr. samanborið við 378 m.kr. hagnað á árinu 2005. Þetta er besta afkoma í sögu sparisjóðsins.
"	Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 55,2% samanborið við 47,0% arðsemi á árinu 2005.  Raunarðsemi eigin fjár var 45,2% á árinu 2006. Arðsemin hefur aldrei verið eins há í sögu sparisjóðsins.
"	Hreinar vaxtatekjur drógust saman um 12,6% frá fyrra ári og voru 358 m.kr.
"	Hreinar rekstrartekjur námu 1.173 m.kr. samanborið við 867 m.kr. á árinu 2005, sem er 35,3% aukning milli ára.
"	Hlutfall kostnaðar af tekjum var 39,3% samanborið við 47,8% á árinu 2005. 
"	Virðisrýrnun útlána nam 93 m.kr., jókst um 25,1% á milli ára, var 75 m.kr. á árinu 2005. 
"	Heildareignir námu 21.050 m.kr. í árslok 2006 og hafa aukist um 22,0% á árinu.
"	Útlán til viðskiptamanna námu 15.818 m.kr. í árslok 2006 og jukust um 28,7%. Hlutfall útlána til einstaklinga var í árslok 2006 61,9% en var 59,3% í árslok 2005.
"	Almenn innlán námu 11.172 m.kr. í lok ársins 2006 og jukust um 37,1%. Þetta er mesta innlánsaukning í sögu sparisjóðsins.  
"	Eigið fé nam 1.418 m.kr. í lok ársins 2006, jókst um 38,1% á árinu, eiginfjárhlutfall (CAD) var 11,3% og eiginfjárþáttur A var 14,2%. 

Að sögn Carls H. Erlingssonar sparisjóðsstjóra var árið 2006 SPK ákaflega hagfellt. Hagnaður af rekstri nam 511 m.kr. sem er besta afkoma í sögu sparisjóðsins og arðsemi eigin fjár sú hæsta, 55,2%. Markaðsaðstæður voru SPK hagstæðar á árinu og jukust hreinar tekjur af fjáreignum og fjárskuldum um 304 m.kr. frá fyrra ári eða um 85,4%.  Væntingar eru um góða afkomu á árinu 2007.

Efnahagsreikningur SPK jókst um 22,0% á árinu, sem einkum má rekja til  vaxtar í almennri viðskiptabankastarfsemi, þ.e. inn- og útlánum. Starfsemi SPK hefur styrkst mikið og viðskiptavinum fjölgað. SPK mun sem fyrr kappkosta að bjóða viðskiptavinum sínum fjölbreytt og gott vöruúrval.

Stofnfé nam 418 m.kr. í lok ársins 2006 og jókst um 4,9%. Varasjóður nam 1.001 m.kr. króna í árslok og jókst um 59,1% á árinu. Á aðalfundi 2007 mun stjórn SPK leggja til við stofnfjáreigendur að heimild stjórnar til útgáfu nýs stofnfjár verði rýmkuð verulega til að auka fjárhagslegan styrk og getu sparisjóðsins á næstu árum. 

Á árinu 2007 mun SPK flytja höfuðstöðvar sínar úr Hlíðasmára 19 í glæsilega nýbyggingu að Digranesvegi 1. Útibú verður áfram rekið í Hlíðasmára 19 en útibúi að Digranesvegi 10 verður lokað um leið og flutningurinn á sér stað í hinar nýju höfuðstöðvar.

Meðalfjöldi starfsmanna á árinu umreiknaður í heilsársstörf var 34 en var 33 á árinu 2005. Stöðugildi í árslok voru 34. 

Stjórn SPK hyggst leggja til á aðalfundi sparisjóðsins, sem boðað verður til fljótlega,  að stofnfjáraðilum verði greiddur 35,0% arður af stofnfjáreign í lok ársins 2006 og að heimild til aukningar stofnfjár verði nýttar, annars vegar með endurmati, sbr. 67. gr. laga nr. 161/2002, og hins vegar með ráðstöfun hluta hagnaðar, sbr. 2. tl. 68. gr. sömu laga. 

Frekari upplýsingar veita: Carl H. Erlingsson, sparisjóðsstjóri, netfang: carl@spk.is, og Ólafur K. Ólafs, forstöðum. reikningshalds, hag- og rekstrarsviðs, netfang: olafur@spk.is,  í síma 515-1900.

2. Helstu lykiltölur 2005-2006


Samstæðuuppgjör SPK 2005 og 2006 m.v. alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS)
 	 	 	 

Fjárhæðir í m.kr. á verðlagi hvers árs	 	 	 
 	 	 	 

REKSTRARREIKNINGUR:	2006	2005	Breyting
 	 	 	%
Vaxtatekjur.......................................................................	2.087	1.321	58,0%
Vaxtagjöld........................................................................	(1.730)	(912)	89,7%
Hreinar vaxtatekjur	358	410	-12,6%
Þjónustutekjur..................................................................	159	141	13,1%
Þjónustugjöld...................................................................	(55)	(45)	22,8%
Hreinar þjónustutekjur	104	96	8,5%
Hreinar tekjur af fjáreignum og fjárskuldum.........................	660	356	85,4%
Aðrar rekstrartekjur.........................................................	50	5	904,3%
Hreinar rekstrartekjur	1.173	867	35,3%
Laun og launatengd gjöld..................................................	(208)	(187)	11,3%
Annar rekstrarkostnaður...................................................	(237)	(213)	11,4%
Afskriftir.........................................................................	(16)	(15)	8,0%
Rekstrargjöld samtals	(461)	(414)	11,2%
Virðisrýrnun útlána..........................................................	(93)	(75)	25,1%
Hagnaður fyrir skatta	618	378	63,7%
Tekjuskattur..................................................................	(107)	(45)	138,6%
Hagnaður ársins	511	333 	53,7%
 
	 	 	 
EFNAHAGSREIKNINGUR:	2006	2005	Breyting
Eignir	 	 	%
Sjóður og kröfur á lánastofnanir.......................................	1.583	1.645	-3,7%
Útlán............................................................................	15.818	12.286	28,7%
Veltufjáreignir...............................................................	850	449	89,4%
Fjáreignir tilgreindar á gangvirði.....................................	2.169	2.587	-16,2%
Rekstrarfjármunir og aðrar eignir....................................	630	285	121,0%
Eignir samtals	21.050	17.252	22,0%

Skuldir	 	 	 
Innlán frá fjármálafyrirtækjum......................................	1.574	1.906	-17,4%
Almenn innlán............................................................	11.172	8.150	37,1%
Lántaka.....................................................................	5.419	5.243	3,3%
Víkjandi lán...............................................................	703	671	4,7%
Lífeyrisskuldbindingar.................................................	31	31	0,2%
Skattskuld................................................................	246	139	76,7%
Aðrar skuldir.............................................................	486	84	479,5%
Skuldir samtals	19.632	16.225	21,0%

Eigið fé   	 	 	 
Stofnfé....................................................................	418	398	4,9%
Varasjóður..............................................................	1.001	629	59,1%
Eigið fé samtals	1.418	1.027	38,1%
 	 	 	 
Skuldir og eigið fé samtals	21.050	17.252	22,0%
 	 	 	 
KENNITÖLUR:	2006	2005	 
Arðsemi eigin fjár ...........................................................	55,2%	47,0%	 
Eiginfjárhlutfall (CAD)......................................................	11,3%	14,1%	 
Eiginfjárhlutfall (eiginfjárþáttur A)...................................	14,2%	11,7%	 
Vaxtamunur (hreinar vaxtatekjur / meðalstöðu fjármagns)..	1,9%	2,9%	 
Framlag í afskriftareikning í hlutfalli af meðalstöðu útlána....	0,7%	0,7%	 
Kostnaðarhlutfall...........................................................	39,3%	47,8%	 
Aðrar rekstrartekjur í hlutfalli af kostnaði......................	254,4%	209,1%	 


3. Helstu lykiltölur 2002-2004

Samstæðuuppgjör SPK 2002-2004 skv. íslenskum ársreikningalögum
 	 	 	 
Fjárhæðir í m.kr. á verðlagi hvers árs	 	 	 
 	 	 	 
REKSTRARREIKNINGUR:	2004	2003	2002

Vaxtatekjur......................................................................................	909	852	961
Vaxtagjöld.......................................................................................	(519)	(501)	(608)
Hreinar vaxtatekjur	389	352	353
Aðrar rekstrartekjur...........................................................................	238	213	201
Hreinar rekstrartekjur	627	565	554
Önnur rekstrargjöld...........................................................................	(407)	(354)	(437)
Hagnaður fyrir framlag í afskriftareikning útlána	220	211	117
Framlag í afskriftareikning útlána..................................................	(57)	(222)	(85)
Hagnaður fyrir skatta	163	(11)	32
Tekjuskattur....................................................................................	(28)	3	(5)
Hagnaður (tap) ársins	134 	(8)	27 
 

	 	 	 
EFNAHAGSREIKNINGUR:	2004	2003	2002
Eignir	 	 	 
Sjóður og kröfur á lánastofnanir.....................................................	1.770	2.364	1.200
Útlán...........................................................................................	8.252	5.981	6.837
Markaðsbréf og eignarhlutir í félögum..............................................	582	490	567
Aðrar eignir.................................................................................	266	271	240
Eignir samtals	10.870	9.106	8.844
 	 	 	 
Skuldir og eigið fé :			
Skuldir við lánastofnanir...............................................................	205	201	429
Innlán ..................................................................................................	6.571	6.110	5.171
Lántaka.......................................................................................	2.998	1.740	2.043
Aðrar skuldir og skuldbindingar.....................................................	180	176	228
Víkjandi lán.................................................................................	183	241	285
Skuldir samtals	10.137	8.469	8.156
Eigið fé......................................................................................	734	637	687
Skuldir og eigið fé samtals	10.870	9.106	8.844
 	 	 	 
KENNITÖLUR:	2004	2003	2002
Arðsemi eigin fjár .............................................................................	22,1%	-1,2%	3,9%
Eiginfjárhlutfall (CAD)...................................................................	12,0%	12,3%	12,0%
Eiginfjárhlutfall (eiginfjárþáttur A)..................................................	9,3%	9,0%	8,7%
Vaxtamunur (hreinar vaxtatekjur / meðalstöðu fjármagns)..............	3,9%	3,9%	4,0%
Framlag í afskriftareikning í hlutfalli af meðalstöðu útlána................	0,8%	3,5%	1,2%
Kostnaðarhlutfall..........................................................................	64,9%	62,7%	78,8%
Aðrar rekstrartekjur í hlutfalli af kostnaði......................................	58,4%	60,2%	45,9%


4. Áhrif af innleiðingu alþjóðlegra reikningsskilastaðla (IFRS)

Ársreikningur SPK er nú í fyrsta skipti gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum. Innleiðing þeirra leiðir til breytinga á framsetningu á rekstrar- og efnahagsreikningi sparisjóðsins. 

Ársreikningur sparisjóðsins fyrir rekstrarárið 2006 er gerður í samræmi við þær reikningsskilaaðferðir sem fjallað er um í skýringum með ársreikningi um reikningsskilaaðferðir.  Þetta á einnig við um samanburðarfjárhæðir fyrir árið 2005 og opnunarefnahagsreikning 1. janúar 2005, þar sem breytingar taka gildi þann dag, sem einnig er nefndur innleiðingardagur. Fjárhæðum í opnunarefnahagsreikningi 1. janúar 2005 hefur verið breytt í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla, en voru áður birtar í samræmi við íslensk lög og reikningsskilavenjur.  Ekki er um að ræða verulegar breytingar á sjóðstreymi bankans samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum samanborið við hvernig það var áður samkvæmt íslenskum reikningsskilavenjum. Heildaráhrif yfirfærslu í alþjóðlega reikningsskilastaðla á eigið fé er hækkun um 149 m.kr. 

Áhrifin af þessum nýju reikningsskilaaðferðum á rekstrar- og efnahagsreikning eru að því er varðar lántökugjöld sem tekjufærast/gjaldfærast á lánstímanum í stað þess að vera færð sem tekjur/gjöld á lántökudegi.  Þar af leiðandi lækka vaxtatekjur og vaxtagjöld sparisjóðsins til skamms tíma, en langtímaáhrif verða óveruleg. Í samræmi við IAS 39 hefur sparisjóðurinn framkvæmt virðisrýrnunarpróf á útlánum og leiddi það til lækkunar á eigin fé um 4 m.kr. þegar tekið hefur verið tillit til tekjuskatts. Samkvæmt IAS 39 ber sparisjóðnum að yfirfara öll útlán til að ganga úr skugga um hvort þar sé að gæta hlutlægra vísbendinga um virðisrýrnun sem áhrif hefur á vænt fjárstreymi af útláninu.  Útlánið verður þá fært niður í núvirði vænts fjárstreymis. Útlánið verður þá fært niður í núvirði vænts fjárstreymis. Samstæðan seldi hluta af greiðsluflæði lánasafns síns á árinu 2004. Við upptöku alþjóðlegra reikningsskilastaðla hækkaði eigið fé 1. janúar 2005 um 40 m.kr. vegna þessa.

Sparisjóðurinn metur öll hlutabréf sín í óskráðum félögum á áætluðu gangvirði í stað kaupverðs eða markaðsverðs, ef það var áætlað lægra en kaupverðið. Þessar breytingar leiða til gengishagnaðar sem færist í rekstrarreikning. Við upptöku alþjóðlegra reikningsskilastaðla hækkaði eigið fé 1. janúar 2005 um 92 m.kr. vegna hækkunar á óskráðum eignum metnum á gangvirði. 



Attachments

Sparisjour Kopavogs - 12 2006.pdf