Hagnaður Icelandair Group fyrir skatta 3,1 milljarðar króna Helstu niðurstöður uppgjörs Icelandair Group: " Hagnaður Icelandair Group fyrir skatta 2006 var 3,060 milljarðar króna " Hagnaður Icelandair Group fyrir fjármagnsliði og afskriftir (EBITDA) var 6,058 milljarðar króna " EBIT nemur 3,326 milljörðum og eykst um 28% frá síðasta ári " Hagnaður eftir skatta 2,615 milljarðar króna " Heildartekjur fyrirtækisins voru 56,1 milljarðar króna-23% aukning frá 2005 " Afkoma 4. ársfjórðungs neikvæð um 555 milljónir króna " Icelandair Group skráð í Kauphöll Íslands í desember 2006 " Icelandair stærsta fyrirtæki samstæðunnar með um 52% af tekjum félagsins " Eiginfjárhlutfall 34% " Handbært fé frá rekstri 6,4 milljarðar króna " Eignir 76,6 milljarðar króna í árslok 2006 Jón Karl Ólafsson forstjóri Icelandair Group segir: "Rekstur samstæðunnar gekk mjög vel á árinu 2006 og afkoma var nokkuð betri en áætlanir okkar gerðu ráð fyrir, og sú besta í sögu félagsins. Það er sérstaklega ánægjulegt nú þegar félagið hefur verið skráð í Kauphöll Íslands og er orðið almenningshlutafélag að geta kynnt nýjum hluthöfum góðan hagnað af starfseminni. Árangurinn byggir fyrst og fremst á frábæru og samhentu starfsliði og mikilli reynslu og þekkingu, sem við náum að nýta okkur til að ná góðum árangri. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi vexti fyrirtækisins á næstu árum. Horfur eru almennt góðar og spár gera ráð fyrir vexti í atvinnugreininni. Útlitið er því gott og við ætlum okkur að gera enn betur á árinu 2007."