Glitnir sjóðir - Ársuppgjör 2006


Stjórn Glitnis sjóða hf., sem rekur Verðbréfasjóði Glitnis og Fjárfestingarsjóði Glitnis hefur staðfest ársreikning félagsins fyrir árið 2006. 

Afkoma Glitnis sjóða hf. árið 2006 - 27,6% vöxtur eigna í stýringu

"	Hagnaður Glitnis sjóða hf. eftir skatta árið 2006 nam 28,9 m.kr. samanborið við  8,3 m.kr. árið 2005.
"	Hagnaður færður á hlutdeildarskírteini eigenda Verðbréfa- og Fjárfestingarsjóða Glitnis var 11.857 m.kr. árið 2006 samanborið við 9.443 árið 2005 sem er 25,6% aukning á milli ára.
"	Hreinar rekstrartekjur námu 1.155 m.kr. samanborið við 942 m.kr. árið áður, jukust um 22,6%
"	Rekstrargjöld námu 1.120 m.kr. samanborið við 932 m.kr.
"	Heildareignir félagsins námu 215 m.kr. en voru 151 m.kr. í ársbyrjun. 
"	Eigið fé í árslok 2006 nam 82,7 m.kr. en var 53,9 m.kr. í ársbyrjun
"	Eiginfjárhlutfall félagsins, sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki, var 48,1% í árslok 2006 en þetta hlutfall má ekki vera lægra en 8,0%
"	Hrein eign sjóða í stýringu Glitnis sjóða hf. námu 145.765 m.kr. í lok ársins samanborið við 114.315 m.kr. í árslok 2005, jukust um 27,6% á árinu 2006.
"	Glitnir sjóðir hf. sér um stýringu og rekstur á sex sjóðsdeildum í Verðbréfasjóðum Glitnis og tveimur sjóðsdeildum í Fjárfestingarsjóðum Glitnis. Einnig sér félagið um stýringu á tveimur verðbréfasjóðum og einum vogunarsjóði í Glitnir Asset Management S.A. í Lúxemborg.  Hrein eign í stýringu Glitnis sjóða hf. í Lúxemborg eru 11.478 m.kr. í árslok 2006.
"	Ársreikningi félagsins er skipt í tvo hluta, A-hluta sem inniheldur ársreikning Glitnis sjóða og B-hluta sem inniheldur ársreikning Verðbréfasjóða Glitnis og Fjárfestingarsjóða Glitnis.  Þessi framsetning á reikningnum er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
"	Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu félagsins og sjóðanna á árinu 2006. 

Lykiltölur í m.kr.

	2006	2005
Hreinar rekstrartekjur	1.155	942
Rekstrargjöld	1.120	932
Hagnaður fyrir skatta	35	10
Hagnaður eftir skatta	29	8
		
Eigið fé 31.12	83	54
		


Afkoma Verðbréfasjóða Glitnis fyrir árið 2006

"	Hagnaður Verðbréfasjóða Glitnis færður á hlutdeildarskírteini árið 2006 nam 6.969 m.kr., samanborið við 6.649 m.kr. árið 2005.
"	Heildareignir Verðbréfasjóða Glitnis námu 71.887 m.kr. í árslok 2006 samanborið við 70.018 m.kr. árslok 2005.
"	Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu, efnahag og hreinni eign  verðbréfasjóðanna á árinu 2006. 

Lykiltölur í m.kr.


	
Sjóður 1	
Sjóður 5	
Sjóður 6	
Sjóður 7	
Sjóður 11	
Heimssafn	Samtals Verðbréfa-sjóðir
Hagnaður 
færður á hlutdeildar-skírteini	2.838	551	1.238	1.300	492	550	6.969
Heildareignir 31.12.2006	32.141	6.972	7.158	18.052	5.315	2.249	71.887


Afkoma Fjárfestingarsjóða Glitnis fyrir árið 2006

"	Hagnaður Fjárfestingarsjóða Glitnis færður á hlutdeildarskírteini árið 2006 nam 4.888 m.kr., samanborið við 2.794 m.kr. árið 2005.
"	Heildareignir Fjárfestingarsjóða Glitnis nam 62.943 m.kr. í árslok 2006 samanborið við 32.939 m.kr. í árslok 2005.
"	Ársreikningurinn hefur verið endurskoðaður af PricewaterhouseCoopers hf. sem telur að reikningurinn gefi glögga mynd af afkomu, efnahag og hreinni eign fjárfestingarsjóðanna. 


Lykiltölur í m.kr

	
Sjóður 9	
Sjóður 10	Samtals Fjárfestingarsjóðir
Hagnaður færður á hlutdeildar-skírteini	4.081	807	4.888
Heildareignir 31.12.2006	57.782	5.161	62.943


Ársreikningur félagsins verður tilbúinn 1. mars og mun liggja frammi hjá Eignastýringu Glitnis, Kirkjusandi, 4. hæð og á www.glitnir.is/sjodir  

Nánari upplýsingar um ársreikning Glitnis sjóða hf. veitir Eggert Þór Kristófersson, framkvæmdastjóri félagsins í síma 440-4955.



Attachments

Glitnir sjoir - Annual Results 2006.pdf Glitnir sjoir - 12 2006.pdf