Tilkynning um uppboð á endurhverfum verðbréfasamningum og innstæðubréfum


Í samræmi við 3. gr. reglna um viðskipti lánastofnana við Seðlabanka Íslands frá 10. desember 2004, efnir Seðlabankinn til uppboðs á endurhverfum verðbréfasamningum þriðjudaginn 27. febrúar 2007,  kl. 11 f.h. 

Uppboðið verður fastverðsuppboð, þ.e. Seðlabankinn býðst til að kaupa verðbréf samkvæmt tilboðum innlánsstofnana á fastri ávöxtunarkröfu, 14,25 %. 

Tilboð þurfa að berast alþjóða- og markaðssviði Seðlabanka Íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík, fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 27. febrúar 2007. Hægt er að senda inn tilboð með símbréfi á nr. 569 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/71). 

Um framkvæmd uppboðsins að öðru leyti og frágang viðskipta vísast til liða 3. gr. í framangreindum reglum. Niðurstaða uppboðsins verður tilkynnt kl. 13:00 þriðjudaginn 27. febrúar 2007.

Seðlabanki Íslands efnir einnig til uppboðs á 7 daga innstæðubréfum þriðjudaginn 27. febrúar 2007 kl. 14:30 e.h. Hægt er að senda inn tilboð með símbréfi á nr. 569- 9604, ef það er staðfest fyrirfram með símtali við alþjóða- og markaðssvið Seðlabankans (s. 569 9670/671). Ávöxtunarkrafa innstæðubréfa er 14,10%. Niðurstaða uppboðsins verður tilkynnt kl. 15:00  þriðjudaginn 27. febrúar  2007.