Lykiltölur í millj. kr. 2006 2005 Breyting 2004 2003 2002 Rekstrarreikningur: Vaxtatekjur 905 779 16,3% 621 706 764 Vaxtagjöld 743 506 46,7% 347 389 453 Hreinar vaxtatekjur 163 272 -40,2% 274 316 311 Aðrar rekstrartekjur 1.070 561 90,8% 223 268 118 Hreinar rekstrartekjur 1.232 833 47,2% 497 584 429 Önnur rekstrargjöld 392 355 10,5% 311 327 287 Framlag í afskriftareikning útlána 233 221 5,1% 222 235 132 Hagnaður fyrir skatta 607 257 136,7% (36) 22 10 Tekju- og eignarskattur 193 (44) 9 (3) 1 Hagnaður ársins 801 213 276,6% (27) 56 9 Efnahagsreikningur: Eignir: Sjóður og kröfur á lánastofnanir 174 713 -75,6% 376 476 427 Útlán 6.943 5.949 16,7% 5.631 5.763 5.416 Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum 2.130 1.350 57,8% 519 767 576 Aðrar eignir 410 247 66,3% 336 294 327 Eignir samtals 9.657 8.259 16,9% 6.862 7.299 6.746 Skuldir og eigið fé: Skuldir við lánastofnanir 8 4 118,0% 154 2 643 Innlán 5.042 4.444 13,5% 3.941 4.288 3.753 Lántaka 2.126 2.255 13,5% 1.905 1.933 1.473 Aðrar skuldir 78 84 -6,8% 67 60 65 Skuldbindingar 34 48 -29,1% 25 27 22 Víkjandi lán 564 424 33,0% 151 251 155 Eigið fé 1.805 1.000 80,5% 619 737 635 Skuldir og eigið fé samtals 9.657 8.259 16,9% 6.862 7.299 6.746 Eiginfjárhlutfall skv. CAD 13,5% 12,0% 11,7% 11,8% 9,9% Arðsemi eigin fjár 80,2% 27,7% -4,3% 7,0% 1,6% Vaxtamunur 1,8% 3,5% 4,0% 4,4% 4,7% Afskriftir sem hlutfall af útlánum 3,6% 3,7% 3,9% 4,1% 1,9% Rekstrarkostnaður af hreinum rekstrartekjum 31,8% 42,6% 62,6% 56,0% 66,9% Innlánsaukning 13,5% 3,6% 5,0% 8,8% 23,6% Útlánsaukning 16,7% 3,2% 3,8% 2,3% 6,2% Meðalstöðugildi 43 43 35 35 32 Rekstur Hagnaður Sparisjóðs Vestfirðinga nam 800,6 millj. kr. á árinu 2006, samanborið við 212,6 millj. kr. hagnað á árinu 2005. Arðsemi eigin fjár á árinu 2006 var 80,2% en hún var 27,7% árið áður. Vaxtatekjur námu alls 905,5 millj. kr. á árinu 2006 og hækkuðu um 16,3% frá árinu áður. Vaxtagjöld námu 742,7 millj. kr. og hækkuðu þau um 46,7% frá fyrra ári. Hreinar vaxtatekjur sparisjóðsins námu því 162,8 millj. kr. en þær voru 272,4 millj. kr. á síðasta ári. Aðrar rekstrartekjur voru 1.069,5 millj. kr. og hækkuðu um 508,9 millj. kr. frá árinu 2005. Hreinar rekstrartekjur námu 1.232,3 millj. kr., en þær námu 833,0 millj. kr. árið áður. Rekstrargjöld sparisjóðsins námu 392,3 millj. kr. en námu 355,1 millj. kr. á árinu 2005. Framlag í afskriftarreikning útlána nam 232,7,4 millj. kr., en var 221,4 millj. kr. á árinu 2005. Efnahagur Útlán sparisjóðsins námu 6.942,9 millj. kr. og aukast um 993,9 millj. kr. frá árinu 2005 eða um 16,7%. Markaðsverðbréf og eignarhlutir í félögum námu 2.130,1 millj. kr. og hækka um 57,8%. Allar eignir sparisjóðsins í skráðum verðbréfum eru færðar á markaðsverði. Eigið fé Eigið fé Sparisjóðs Vestfirðinga í árslok 2006 nam 1.805.2 millj. kr. og víkjandi lán námu 564,0 millj. kr. eða samtals 2.369,2 millj. kr. Eiginfjárhlutfall samkvæmt CAD-reglum er 13,5% en það var 12,0% í árslok 2005. Annað Sjóðurinn skilar 800.6 millj. kr. hagnaði á árinu 2006, en umtalsverð hækkun varð á markaðsverðbréfum sjóðsins á árinu en gengishagnaður sjóðsins nam 944,4 millj. kr. á árinu. Eiginfjárstaða sjóðsins hefur styrkst á árinu, en eigið fé og víkjandi lán sjóðsins nema nú 2.369 millj. kr. og er eiginfjárhlutfall hans er 13,5% í árslok. Aðalfundur Sparisjóðs Vestfirðinga verður haldinn í 16. mars 2007. Stjórn sparisjóðsins leggur til að greiddur verði 8,0% arður á árinu 2007 vegna ársins 2006. Sparisjóður Vestfirðinga Nánari upplýsingar veitir Angantýr V. Jónasson sparisjóðsstjóri sími 450 2500
Sparisjóður Vestfirðinga - Ársuppgjör 2006
| Source: Sparisjóður Vestfirðinga