Framkvæmdanefnd um einkavæðingu í umboði fjármálaráðherra, hefur auglýst tilhögun sölu á eignarhlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf. Um er að ræða 15,203% af heildar hlutafé félagsins að nafnverði 1.133.356.000 krónur. Söluferlið verður tvíþætt. Þeir aðilar sem hafa hug á að bjóða í eignarhlutinn skulu lýsa yfir þeim áhuga sínum eigi síðar en kl. 16:00, þann 2. apríl nk. Þurfa þeir að uppfylla eftirfarandi skilyrði: 1. Tilboðsgjafi skal uppfylla skilyrði 2. tölul. 1. mgr. 4. gr. laga nr. 34/1991, um fjárfestingar erlendra aðila á Íslandi, til fjárfestinga í íslensku atvinnufyrirtæki sem stundar orkuvinnslu og orkudreifingu. 2. Eignarhluturinn verður eingöngu seldur í einu lagi til eins aðila, þ.e. einstaklings eða lögaðila. 3. Tilboðsgjafi verður að sýna fram á fjárhagslegan styrkleika til að efna kaupin, hvort sem er með eigin fé eða annars konar fjármögnun. 4. Loks mega íslensk orkufyrirtæki í opinberri eigu, þ.e. þau félög sem stunda starfsemi sem fellur undir raforkulög nr. 65/2003, ekki bjóða í eignarhlut íslenska ríkisins. Sama gildir um dótturfélög framangreindra fyrirtækja og önnur félög þar sem þau fara með yfirráð í skilningi samkeppnislaga. Þeir sem uppfylla skilyrðin geta tekið þátt í seinni umferð söluferlisins, þar sem kostur gefst á kynningu á fyrirtækinu og nánari upplýsingum um söluferlið. Framkvæmdanefnd um einkavæðingu vekur athygli á að samkvæmt samþykktum Hitaveitu Suðurnesja hf. á félagið sjálft og núverandi hluthafar forkaupsrétt að eignarhlutunum. Stefnt er að því að söluferlinu ljúki í lok aprílmánuðar. FNE hefur ráðið Capacent ehf sem ráðgjafa nefndarinnar við sölu á hlut ríkisins í Hitaveitu Suðurnesja hf. Hægt er að nálgast ýmis gögn um Hitaveitu Suðurnesja hf. og söluferlið á vefslóðinni www.capacent.is/hs Nánari upplýsingar veita Stefán Jón Friðriksson hjá fjármálaráðuneyti og Þórhallur Vilhjálmsson hjá forsætisráðuneyti. Reykjavík, 7. mars 2007 Framkvæmdanefnd um einkavæðingu.