HB Grandi - Aðalfundur 23. mars 2007


Aðalfundur HB Granda hf. verður haldinn föstudaginn 23. mars 2007 í matsal fyrirtækisins að Norðurgarði, Reykjavík, og hefst hann kl. 17:00.


Dagskrá.

1.	Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 18. gr. samþykkta félagsins.

2.	Tillaga um heimild félagsstjórnar til kaupa á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga.

3.	Tillaga félagsstjórnar um starfskjarastefnu.

4.	Önnur mál, löglega upp borin.


   
Dagskrá, endanlegar tillögur, svo og ársreikningur félagsins munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Ennfremur er hægt að nálgast gögnin á vefsíðu félagsins www.hbgrandi.is.

Framboðsfrestur vegna stjórnarkjörs rennur út fimm virkum dögum fyrir upphaf aðalfundar.  Upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar verða birtar eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 16:30.

Óski hluthafar eftir að ákveðin mál verði tekin til meðferðar á aðalfundinum, þarf skrifleg beiðni um það að hafa borist félagsstjórn með nægjanlegum fyrirvara, þannig að unnt sé að taka málið á dagskrá fundarins.

Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn, en hyggjast gefa umboð, þurfa að gera það skriflega.  
 
  
Stjórn HB Granda hf.