Gott sjóðsstreymi og traustur fjárhagur Rekstur Akureyrarbæjar skilaði góðu sjóðsstreymi og fjárhagurinn er traustur þrátt fyrir að árið sé gert upp með nokkrum halla og reiknaðir liðir liti afkomuna. Ársreikningar fyrir árið 2006 voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 20. mars og 3. apríl nk. Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga. Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar, Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en rekstur þeirra er að stoni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin eru: Félagslegar íbúðir, Fráveita Akureyrabæjar, Strætilvagnar Akureyrabæjar, Öldrunastofnun Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands, Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Hlíðar og Skjaldavíkur. Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og er heildarniðurstaða ársins í meginatriðum eins og fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir, utan reiknaðra liða, og er fjárhagurinn traustur. Reiknaðir liðir vegna verðbólgu, aukinna áfallinna lífeyriskuldbindinga og reiknaðrar tekjuskattsinneignar hjá Norðurorku hafa þó veruleg áhrif á niðurstöðuna. Rekstrarniðurstaða samstæðunnar var neikvæð um 356 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir 87,7 milljóna króna hagnaði á árinu. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam veltufé frá rekstri 1.335,1 millj.kr. og handbært fé frá rekstri 1.270,8 millj.kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.774,4 millj.kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 308,4 millj.kr. Afborgun langtímalána nam 869,7 millj.kr. en ný langtímalán námu 866,6 millj.kr. Lækkun á handbæru fé á árinu nam 195,2 millj.kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins í árslok 1.306,7 millj.kr. Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 4.942.887 þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.459 og hafði aukist um 3 frá fyrra ári. Laun og launatengd gjöld sveitarfélagsins, án aukinna lífeyrsiskuldbindinga, í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 54,2% en 59,5% með aukningu áfallinna lífeyrisskuldbindinga. Gjaldfærð lífeyrisskuldbinding á árinu nam 641 millj. kr. Árið 2006 verður væntanlega síðasta ári þar sem um stóra gjaldfærslu vegna lífeyrisskuldbindinga verður að ræða þar sem söluandvirði Landsvirkjunar kemur til lækkunar á skuldbindingunni. Annar rekstrarkostnaður var 32,4% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins voru 315 þús.kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 660 þús.kr. á hvern íbúa. Árið 2005 voru skatttekjurnar 290 þús.kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 608 þús.kr. Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 24.082,8, millj.kr., þar af eru veltufjármunir 2.726,3 millj.kr. Skuldir sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi 16.580,3 millj.kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.454,6 millj.kr. Veltufjárhlutfallið er 0,79 í árslok, en var 1,07 árið áður. Bókfært eigið fé nemur 7.502,5 millj.kr í árlok. Eiginfjárhlutfall er 31,0% af heildarfjármagni en var 0,36% árið áður. Helstu niðurstöðutölur úr rekstrarreikningi og sjóðstreymisyfirliti samstæðureiknings Akureyrarbæjar árið 2006 má sjá í eftirfarandi töflu: Úr rekstraryfirliti og sjóðstreymisyfirlit fyrir árið 2006 Þúsundir króna Niðurstaða Áætlun Frávik Skatttekjur og framlög Jöfnunarsjóðs 5.303.095 5.302.658 437 Tekjur málaflokka og rekstrartekjur veitna 5.795.749 5.520.122 275.627 Rekstrartekjur samtals 11.098.844 10.822.780 276.064 Rekstrargjöld: Laun, og launatengd gjöld ásamt breytingu á lífeyrisskuldbindingu 6.602.244 5.985.691 (616.553) Annar kostnaður 3.594.243 3.575.816 (18.427) Afskriftir 913.402 890.327 (23.075) Rekstrargjöld samtals 11.109889 10.451.834 (658.055) Rekstraniðurstaða án fjármagnsliða (11.045) 370.946 (381.991) Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld (1.015.704) (283.256) (732.448) Tekjuskattsinneign við upphaf skattskyldu Norðurorku 734.756 0 734.756 Tekjuskattur ársins (26.908) (26.908) Rekstrarniðurstaða (355.906) 87.690 (443.596) Veltufé frá rekstri 1.335.119 978.017 357.102 Fjárfesting í varanlegum rekstrarfjámunum 1.774.401 1.528.503 (245.898) Handbært fé í árslok 1.306.678 1.434.128 (127.450) Efnahagsreikningur Helstu niðurstöðutölur samstæðu efnahagsreiknings 31. desember 2006 má sjá í töflu hér að neðan og til samanburðar eru sambærilegar tölur fyrir árið 2005. Helstu niðurstöðutölur efnahagsreiknings í árslok 2006 og 2005 Þúsundir króna Eignir 31. des. 2006 31. des. 2005 Óefnislegar eignir 393.281 214.861 Fastafjármunir 17.691.360 16.472.230 Veltufjármunir 2.726.311 2.743.109 Áhættufjármunir og langtímakröfur 3.271.848 2.623.330 Eignir samtals 24.082.800 22.053.530 Eigið fé og skuldir Skammtímaskuldir 3.454.610 2.553.412 Langtímaskuldir 8.815.385 7.925.493 Lífeyrisskuldbindingar 4.310.330 3.735.450 Eigið fé 7.502.475 7.839.175 Eigið fé og skuldir samtals 24.082.800 22.053.530 Meðfylgjandi er einnig úr skýringum með ársreikninginum, þar sem fram kemur heildaryfirlit um rekstur, yfirlit um lykiltölur og hvernig heildartekjur og gjöld í hlutfalli við tekjur greinast síðustu 3 ár á verðlagi hvers árs í þúsundum króna.