Fagfjárfestasjóðurinn KB ABS 1 - Ársuppgjör 2006


Framsetning ársreiknings fagfjárfestasjóðsins KB ABS 1 er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu.
Afkoma fagfjárfestasjóðsins KB ABS 1 árið 2006.
"	Hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu að fjárhæð 26 m.kr. samkvæmt rekstrarreikningi, en KB ABS 1 er útgefandi skuldabréfaflokksins KBABS1 NKY sem skráður er á Kauphöll Íslands.
"	Eigið fé sjóðsins í árs lok nam 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi en sjóðurinn hóf rekstur á tímabilinu.
"	Ársreikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun þeirra hafi ekkert leitt í ljós sem bendir til annars en að ársreikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, efnahag í lok þess og breytingu á handbæru fé og hreinni eign sjóðsins, í samræmi við lög og settar reikningsskilareglur.
Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili KB ABS 1, nam þann 31. desember 3.484 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 56,6% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%.  Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans.
Hægt verður að nálgast ársreikning félagsins frá og með 26. mars 2007 í móttöku Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, Reykjavík.
Nánari upplýsingar um ársreikning KB ABS 1 og Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. veitir Ómar Kaldal Ágústsson, framkvæmdastjóri í síma 444-6000.

Attachments

KB ABS1 - 12 2006.pdf