Ríkisútvarpið - Ársuppgjör 2006


Ríkisútvarpið - Ársreikningur 2006

Rekstrartap árið 2006 var 420 m.kr. en var 196 m.kr. árið áður. Verri afkomu má rekja til hækkunar fjármagnsgjalda og hækkunar á dagskrárefni vegna óhagstæðrar gengisþróunar auk þess sem afnotagjöld hafa ekki fylgt verðlags- og launaþróun.

Á undanförnum árum hefur Ríkisútvarpið tekist á við sífelldan rekstrarvanda. Upphaf hans má rekja meira en fimm ár aftur í tímann þegar afnotagjöld fylgdu ekki almennri verðlagsþróun auk þess sem auknar skuldbindingar voru lagðar á stofnunina. Munar þar mestu um viðbótarframlag í lífeyrissjóð opinberra starfsmanna sem kom til af kröfu ríkisins, að núvirði um 2.730 m.kr. Þetta hefur haft í för með sér umtalsvert hærri fjármagnskostnað hjá stofnuninni. Sífelldur rekstrarvandi hefur orðið til þess að dregið hefur úr fjárfestingum, en árið 2006 voru þær 211 m.kr. sem er engan veginn nóg til þess að viðhalda lágmarksbúnaði.

Rekstrartekjur Ríkisútvarpsins á árinu 2006 voru 3.867 m.kr. og rekstrargjöld voru 3.670 m.kr. Hagnaður af rekstri fyrir afskriftir (EBITDA) var 196 m.kr. samanborið við 271 m.kr. árið á undan. Afskriftir fastafjármuna voru 238 m.kr. og lækka um 20 m.kr. á milli ára. Hrein fjármagnsgjöld jukust hins vegar um 169 m.kr. á milli ára og námu 378 m.kr. árið 2006.

Fjöldi starfsmanna var að meðaltali 340 samanborið við 317 árið áður. Aukningin skýrist af því að verktakar voru gerðir að launþegum.

Í upphafi árs var eigið fé neikvætt um 186 m.kr. en í lok árs var það neikvætt um 606 m.kr.

Framtíðarhorfur
Reikningar Ríkisútvarpsins eru nú birtir með neikvæðu eigin fé annað árið í röð. Það er ljóst að við það verður ekki unað.

Ríkisútvarpið stendur nú á tímamótum. Stjórnvöld hafa ákveðið að breyta því í opinbert hlutafélag og hefst rekstur þess 1. apríl 2007. Samhliða því verða eignir endurmetnar og eiginfjárstaðan bætt með framlagi úr ríkissjóði. 


Attachments

Rikisutvarpid samanburdartafla RUV 2002-2006.pdf Rikisutvarps - 12 2006.pdf