Þann 30. mars 2007 var aðalfundur Verðbréfunar hf. haldinn að Austurstræti 11, 101 Reykjavík, þar sem ársreikningur félagsins fyrir árið 2006 voru lagðir fram og samþykktir. Lykiltölur úr ársreikningnum og kennitölur (í þús.kr.): 2006 2005 2004 2003 2002 Fjármunatekjur ................................ 80.282 109.755 290.536 235.312 157.190 Fjármunagjöld ................................. 76.596 123.281 288.555 229.518 144.791 Rekstrargjöld................................... 1.926 2.088 1.937 5.720 8.470 Afkoma ( tap ) fyrir skatta............... 1.760 (15.614) 44 74 3.929 Afkoma ( tap ) eftir skatta................ 1.443 (12.804) 36 61 3.222 Eigið fé í lok tímabils...................... 2.306 862 13.666 14.630 15.569 Niðurstaða efnahagsreiknings....... 455.441 677.792 2.918.930 2.868.957 2.727.103 Fjárfestingar í áhættufjármunum... 0 0 0 0 0 Afkoma ( tap ) fyrir skatta á hverja kr. nafnverðs 0,1760 (1,5614) 0,0044 0,0074 0,3929 Afkoma ( tap ) eftir skatta á hverja kr. nafnverðs 0,1443 (1,2804) 0,0036 0,0061 0,3222 Veltufjárhlutfall ............................... 515,13 5697,72 248,18 162,69 0,08 Umfjöllun um ársreikninginn og ákvarðanir stjórnar og hluthafa. Stjórn og hluthafar samþykktu ársreikning Verðbréfunar fyrir árið 2006 á fundum sínum í nú lok mars 2007. Starfsemin hjá Verðbréfun hf. hefur verið í lágmarki á árinu 2006. Fasteignamarkaður hefur verið að leita í jafnvægi og hefur dregið úr uppgreiðslu á lánum Verðbréfunar hf. Lánasafn Verðbréfunar hefur þó dregist saman um tæp 24% á milli ára. Úrdráttur skuldabréfa Verðbréfunar hf hefur verið aukin til að halda jafnvægi milli eigna og skulda Verðbréfunar hf. Áætlanir gera ráð fyrir óbreyttum rekstri á árinu 2007. Rekstrarhagnaður Verðbréfunar hf. vegna ársins 2006 endaði í tæpum 2 millj. króna fyrir skatta og/eða 1,4 millj. króna eftir útreiknings tekjuskatta. Verðbréfun færir upp skattinneign vegna eignar á yfirfæranlegu tapi þar það telur að skattinneignin muni nýtast félaginu til framtíðar. Heildareignir félagsins lækkuðu um 222,4 miljónir króna á milli ára. Eigið fé félagsins hækkaði á sama tíma um 1,4 milljónir króna frá fyrra ári. Framtíðarhorfur. Framtíðarhorfur á íbúðalánamarkaði munu skýrast þegar fram í sækir en starfssemi Verðbréfunar hf. fer talsvert eftir því hversu mikið jafnvægi skapast á skuldabréfamarkaði. Gert er ráð fyrir óbreyttum rekstri á komandi ári. Ráðstöfun afkomu. Hagnaður félagsins er færður til hækkunar á óráðstafað eigið fé Upplýsingar um ársreikning Verðbréfunar gefur Pétur Bjarni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Verðbréfunar í síma 410 7580
Verðbréfun - Ársuppgjör 2006
| Source: Verðbréfun hf.