Fréttatilkynning frá Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum. Ársuppgjör 2006 2006 2005 2004 Rekstrartekjur 17.624.577 15.590.504 13.944.936 Rekstrargjöld 15.028.584 14.870.915 12.252.093 Hagnaður fyrir afskriftir 2.595.993 719.589 1.692.843 Afskriftir 0 0 0 Aðrar tekjur 405.552 473.158 437.588 Fjármagnsliðir nettó 2.877.704 3.073.227 571.009 Tekjuafgangur af reglulegri starfsemi 5.879.249 4.265.974 2.701.440 Tekjur/(gjöld) vegna verkefna SSS 983.600 0 136.240 Tekjuafgangur ársins 6.862.849 4.265.974 2.837.680 Efnahagsreikningur: Eignir: 31.12.2006 31.12.2005 31.12.2004 Fastafjármunir alls 357.990.817 397.037.788 464.375.726 Veltufjármunir alls 211.772.014 218.877.168 124.894.353 Eignir samtals 569.762.831 615.914.956 589.270.079 Skuldir og eigið fé: Eigið fé 37.520.214 30.657.365 26.391.391 Langtímaskuldir með ábyrgð sveitarfélaga 391.915.596 461.983.514 427.330.964 Skammtímaskuldir 140.327.021 123.274.077 135.547.724 Skuldir alls 532.242.617 585.257.591 562.878.688 Skuldir og eigið fé alls 569.762.831 615.914.956 589.270.079 Kennitölur: Hagnaður fyrir afskriftir/rekstrartekjur 14,7% 4,6% 12,1% Veltufjárhlutfall 1,51 1,78 0,92 Eiginfjárhlutfall 6,6% 5,0% 4,5% Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum er stofnun í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess. Eignarhaldið er breytilegt og fer eftir íbúafjölda í sveitarfélögum á hverjum tíma. Hlutverk sambandsins er í meginatriðum að hafa umsjón með og annast ýmiskonar verkefni sem sveitarfélögin á Suðurnesjum standa sameiginlega að. Starfsemi sambandsins flokkast því undir að vera á vettvangi sveitarfélaga. Á árinu 2003 seldi sambandið skuldabréf í opnu skuldabréfaútboði fyrir 500 millj. kr. Lánið er verðtryggt, greiðist á tíu árum og ber 5% fasta vexti. Láninu er ætlað að fjármagna framkvæmdir við Fjölbrautaskóla Suðurnesja sem sveitarfélögin þar standa að. Samkvæmt samkomulagi þeirra við ríkissjóð mun hann greiða hlutdeild í framkvæmdum og annast sambandið fjármögnun þeirra fyrir hönd sveitarfélaganna. Sveitarfélögin bera hlutfallslega ábyrgð á greiðslu lánsins og sambandið sér um að innheimta hjá hverju þeirrra hlutdeild í afborgun og vöxtum af láninu á hverjum gjalddaga og standa skil á þeim til skuldareigenda. Í lok ársins 2006 námu eftirstöðvar lánsins 392 millj. kr. og eftirstöðvar þess voru í fullum skilum. Tekjuafgangur sambandsins á árinu 2006 nam rúmum 6,8 milljónum kr. og eigið fé í lok ársins 2006 nam 37,5 milljónum kr. samkvæmt ársreikningi. Starfsemi sambandsins var í megninatriðum í samræmi við áætlanir og greiðslur sveitarfélaganna til sambandsins vegna fjármögnunarverkefna þess voru í skilum. Guðjón Guðmundsson er framkvædastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum og veitir frekari upplýsingar um starfsemi þess og stöðu. Reykjanesbæ, 30. mars 2007 Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum.